Muninn - 18.12.2003, Side 8
Minni karla og kvenna
Elmar:
Fundarstjóri og góðir
hátíðargestir.
Konan er anzi kynlegur kvistur
sem kallaður hefur verið
ýmsum nöfnum í gegnum
tíðina, sum ber hann með rentu
- önnur ekki. Til að mynda var
fyrst minnzt á kvenfólk í
Biblíunni sem meðhjálp, svo
sem konur en næst sem karl-
ynjur.
Þegar ég var yngri hélt ég að
konan væri ekki eins gamalt
fyrirbæri og fólk vill vera láta
og komst einhvern veginn að
þeirri niðurstöðu að konan
hefði skapazt hægt og rólega
frá tímum Mónu Lísu (en það
taldi ég vera fyrstu konuna) og
loksins náð körlum í fjölda á
20stu öld. Svona réttlætti ég
fyrir sjálfum mér að konur væru
hjartveikir aumingjar með
frumstæða hugsun, þær voru
bara ekki eins þróaðar og
karlar.
En nú hef ég elzt og veit að
konan er bara svona frá náttúr-
unnar hendi.
Ég verð eiginlega að viður-
kenna að ég hef aldrei áttað
mig fullkomlega á því út á hvað
Minni kvenna gengur, bjóst satt
að segja alltaf við því að þeir
sem tóku þetta að sér á undan
mér myndu standa í pontu og
bara þegja í smá stund - því
síðast þegar ég gáði þá höfðu
konur ekkert sem kalla má
minni.
Einsog allir vita þá tókst okkur
Menntskælingum að sanna fyrir
stuttu síðan að kynhvötin er
slæm, mér finnst það sýna, svo
ekki verður um villzt, að konur
eru slæmar - því kynhvötin virð-
ist ganga fyrir þeim. Að horfa á
fallega konu er einsog að vera
dáleiddur eftir að hafa tekið
Viagra.
Nú ætla ég bara að benda fólki
á brot af þeim bögglum sem
fylgja þessum mannsrifum. í
fyrsta lagi skilja þær ekki
aulahúmor, sem ætti að vera
dauðasynd. T.d. ef ég myndi
spyrja stelpu úr hverju eðlu-
kjötfars væri, þá myndi hún
horfa á mig einsog mamma
gerði þegar ég pissaði undir,
einsog ég væri Ebóla-veiran
holdi klædd. En strákur, hann
myndi hugsa sig vel um og
segja að eðlukjötfars hlyti að
vera úr eðlum en bíða svo í
ofvæni eftir réttu svari. Sem er
auðvitað að eðlukjötfars er úr
farseðlum.
í öðru lagi eru konur illgjarnar.
Við gætum tekið stutta
dæmisögu því til stuðnings.
Hugsum okkur ástfangið par,
Eitur-Samma og Önnu, Sammi
kemur seint heim, úrvinda og
uppgefinn eftir eðlisfræði-
verkefni, en Anna er búin að
liggja fyrir framan sjónvarpið
allan daginn og vill ólm byrja á
heimaleikfiminni með Samma.
Hún heldur vöku fyrir aumingja
manninum og hann fer
ósofinn í íslenzku daginn
eftir - þar sofnar hann
og hrýtur svo ógurlega
að Kvosin nötrar öll og
skelfur þar til hún hrynur
til grunna og Mennta-
skólinn á Akureyri líður
undir lok.
I þriðja lagi eru konur
óskiljanlegar með öllu, t.d.
hefur enginn haft glóru um það
hingað til hvers vegna konur
nota svona mikið af andlits-
farða og ilmvatni - en eftir ára-
langa hugleiðslu hef ég komizt
að því að það er einfaldlega
vegna þess að þær eru forljótar
og lykta ilia.
Síðast en ekki sízt kunna þær
ekki að halda kjafti, sumar
þurfa þó að gera hlé á máli sínu
til að anda - en aðrar hafa
þjálfað með sér þann hæfileika
að tala á [talar á innsogi]
innsoginu. Ég kann
bara um eina
leið til þess að
komast upp
með að segja
konu opna eða loka
munninum, það er að fara
í tannlæknanám. Að tala við
konu er einsog að dýfa
heilanum í baðkar fullt af
deyfandi lyfjum. Beztu
konurnar fæðast mállausar.
Konur eru einsog allir vita
kaupóðar, og Reykjavík virðist
vera einhvers konar Mekka í
þeirra augum. Allar konur sem
ég þekki laumast fyrst í
Smáralind - sem ég held að
þær geri vegna tippaöfundar,
þær vilja vita hvernig sáð-
frumum líður - síðan fara þær í
byggingu sem kölluð er
Kringlan og þar hef ég heyrt að
þær fái svokallað Kringlukast.
Böðvar Guðlaugsson samdi
einmitt Ijóð um þetta, Til hinnar
heittelskuðu:
Þú sem varst bæði trukkur minn og trilla
Á tröllavegi I lífsins ólgusjó.
Minn dalakofi, kostajörð og villa,
Mín kærleiks brunasmyrsl, mín refsikló.
Þú eina og sanna lífs míns lýsispilla
Mikil tifandis ósköp þarftu dýra skó.
Bjartur í Sumarhúsum sagði að
kvenkynið væri nú líka aumara
en mannkynið, þeim blæðir jú
reglulega og þær þurfa mun
stærri plástra en nokkur
karlmaður hefur á ævi sinni séð
[sýnir áhorfendum dömubindi,
með 5 daga gamalli pizzasósu],
þær fá allsendis ekki bara kúlur
á hausinn ef maður fer með
þeim í koddaslag - heldur
oft eina firnastóra á
magann. Svo geta þær
verið veikar á mun fleiri
vegu en við karla - t.d.
á meðan við fáum
nýrna- og þvag-
leiðarasteina, blöðru-
steina, gallsteina,
tannsteina og augasteina
fá þær allt þetta plús auðvitað
legsteina. En þá fá karlar ekki
fyrr en þeir deyja.
Ég neyðist bókstaflega til að
nýta mér þetta tækifæri og
skamma hinar mýmörgu ungu
konur í þessum skóla sem
kunna ekki að gæta velsæmis.
Ég meina, það er ekkert að því
að ganga í skapadulu (þ.e. g-
streng) [heldur á skapadulu] -
ég hvet í raun flestar konur til
þess. En eitt verður þá að vera
á hreinu - þetta eru brækur,
skapadulur - en
ekki axlabönd!
Þætti ykkur
smekklegt ef ég
væri alltaf í skapa-
dulu og magabol -
með strengina
upp að öxlum?
Engum, fyrir utan
Kristjönu náttúru-
Þegar hárið á mér fór að síkka
upp úr þurru áttaði ég mig á
því hvers vegna kvenfólk er
svona heimskt og áttavillt - það
er með svo mikið hár að það
þarf alltaf að vera að hrista
hausinn [hristir hausinn] og
þjáist því af krónískum
heilahristingi.
Mér finnst við hæfi að flytja hér
að lokum hluta af Minni kvenna
eftir Kristján Benediktsson,
málarameistara en hann lézt í
sumar.
Svo þarf ekki meira til enn eitt
lítið og lélegt rifbein [heldur á
rifbeini], sem maður hefur
Það kannast allir við kvenréttindi,
Sem komið var hér á í skyndi,
Áður fyrr lék hér allt í lyndi
Og lánsamt var hvert eitt hjónaband.
Þá var grózka um gervallt land.
Síðan er allt með öðru sniði,
Eiginkonan á bóndans sviði,
Já, þvílíkt andskotans ektastand
Mér er alveg sama hvað aðrir segja,
Ég álit að konum sé hollt að þegja,
Fyrir karlmannsins þörfum kné sín beygja
Og kunna sinn undirlægjuhátt,
Hamast og þræla og hugsa fátt.
Fyrir löngu ég fann og skildi,
Hvað flest allt kvenfólk þurfti og vildi,
Berja þær svo að i þeim byldi
Og brúka við þær ruddahátt,
En að lokum semja sátt.
Geta þeim börn í girndaræði,
Gefa þeim lítinn mat og klæði
Og sýna þeim villimannsins mátt
nákvæmlega ekkert
með að gera, til að
skapa eina
skaðræðisskepnu,
reyndar þarf víst að
kæla rifbeinin lítið eitt
því konur eru svo
rifjaðar, köld eru kvenna
ráð - en það þýðir, eee,
það þýðir að ég á heilar 24
konur! Kannski að ég búi til
eina, ég sem hélt að fjölkvæni
væri bannað, Æjiégveitþaðekki
[kastar beininu, og úr því
verður Hildigunnur til].
Hildigunnur:
Virðulega samkoma, dömur
mínar og UNAÐSLEGU herrar:
Ó, þið þokkafullu verur sem
fyllið veröld okkar gleði og
tilgangi! Hvað er yndislegra en
að standa á baðherberginu að
morgunlagi og finna volgan
pollinn fyrir neðan klósettið ylja
fætur sína?
Hvað jafnast á við það að þurfa
að fara i leikfimi með brúska
undir höndunum vegna þess að
einhvern langaði svo ofsalega
mikið að prófa rakvélina manns
á skegqinu á sér? Ekkert.
Ekkert.
í upphafi var guð. Hann vantaði
félagsskap í paradís, og skap-
aði því karlmanninn. Það tók
hann svona um það bil eina og
hálfa mínútu. Að verkinu loknu
leit guð á sköpunarverk sitt og
varð að orði: „Ég get nú gert
betur en þetta!" Svo skapaði
hann konuna, en gleymdi að