Muninn - 18.12.2003, Síða 10
MeMA - Metaltónlist í MA.
„Þar sem karlarnir eru kátir!"
Formenn: Jakob Sævar
Sigurðsson (4.A) og Þór
Friðriksson (3.VX)
Þegar við gengum inn í
herbergið hans Þórs á gömlu
vistinni dundi ómótstæðilegt
óperurokk í eyrum okkar. Það
var mikill léttir að sjá að
maðurinn bjó eins og fólk býr
flest, í snyrtilegu herbergi -
meira að segja búinn að setja
upp jólaseríur! Hvorugur
viðmælenda okkar var við, Þór
reyndist vera að þvo á sér hárið
í baðherbergi handan við
ganginn en Jakob í fastasvefni í
herbergi sínu. Við ákváðum að
vekja hann meðan við biðum
eftir Þór. Nokkru eftir að við
bönkuðum á hurðina heyrðum
við einhverja skruðninga hinu-
megin veggjarins, Jakob
opnaði og við okkur blasti
ófögur sjón: maðurinn var eins
dragúldinn og hugsast gæti.
Við spurðum hvort hann hefði
lent í flugslysi en svo reyndist
ekki vera - hann sagðist hafa
setið að sumbli fram eftir degi
og var rétt að sofa úr sér núna
5 tímum seinna. Rokk og ról
það, já! Eftir að hafa sullað sér
smá kóladrykk í glas féllst hann
á að koma með okkur í
áðurnefnt herbergi Þórs. Þegar
þangað var komið beið Þór
nýbaðaður og viðtalið hófst
formlega.
Logi: Lýsið nú aðeins
starfsemi MeMA.
Jakob: Það eina sem við höfum
gert hingað til er að græta
nokkrar busastelpur, en við
stefnum á að halda nokkur
metalkvöld og einnig höfum
við rætt við TóMA um samstarf.
Sigurlaug: Hversu margir eru
félagsmenn MeMA?
Jakob: Þeir eru 65.
Logi og Sigurlaug: Hver er
uppáhalds Disney-myndin
ykkar?
Jakob: Engin. Mér finnst
Disney-myndir asnalegar og ég
er á móti þeim!
Þór: Mary Poppins. Einnig
finnst mér West Side Story
einkar hugljúf og hjartnæm en
hún er víst ekki úr smiðju
Disney (glottir).
Sigurlaug: Þarf maður að vera
alveg hardkor metal til þess
að vera í MeMA?
Þór: Nei, þú þarft bara að hlýða
okkur í einu og öllu. Þetta er
nefnilega svona fasískt félag!
Jakob: Einmitt.
Logi: Eru einhver
samasemmerki á milli
masókisma og blackmetals?
Þór: Ja, ég er nú enginn
masókisti.
Jakob: Hmmm. Það eru
náttúrulega aðeins af því.
textarnir fjalla stundum um að
meiða sig. Einnig er mikið um
kynþáttahyggju innan
tónlistargreinarinnar.
Logi: Veitið þið sjálfum ykkur
áverka?
Jakob: Já, stundum (sýnir okkur
hræðilega rispaðan
handlegginn)
Logi: í hvaða tilgangi?
Jakob: Það er svo flott að vera
skorinn...
Á þessum tímapunkti hefur
Sigurlaug fengið augastað á
skúffu undir rúmi og reynir að
troða sér ofan í hana við miklar
undirtektir og hvatningu
strákanna. Hinn ábyrgðarfulli
Logi lætur engan bilbug á sér
finna og heldur viðtalinu áfram.
Logi: Eruð þið sterkir á
dansgólfinu?
Jakob: NEI.
Þór: Ég er kannski ekki sá
fimasti, en ég er þó þekktur
fyrir að vera ansi trylltur og
taka góðan trylling annað
slagið.
Sigurlaug: Hver er metnaður
MeMA?
Jakob: Að breiða út metal
tónlist.
Þór: Já, við erum mjög
metnaðarfullir ungir menn.
Logi: Er eitthvað sem þið
viljið segja að lokum?
Þór: www.tshirthell.com
Jakob: Fólkið sem fílaði ekki
myndbandið okkar eru bölvaðir
ofverndaðir aumingjar!
Að lokum má geta þess að Þór
notar annað hvort Schwarzkopf
eða Wella hárnæringarvörur til
að halda lokkaflóði sínu svo
fögru sem raun ber vitni.
Blaðamenn: Sigurlaug Elín
Þórhallsdóttir og Logi
Gunnarsson
BpKABÚÐ ,H.
JONASAR sfJll