Muninn - 18.12.2003, Page 11
FAMYMA
Sigurlaug, hvað ert þú að
gera hér í Menntaskólanum?
Læra og verða merkilegri
manneskja.
Nú verður þú að útskýra fyrir
mér þessa skammstöfun,
FámýMA.
Félag áhugamanna um
ýmislegt í MA.
Má það vera hvað sem er? Eg
meina, ef það kemur til þín
maður sem hefur ofboðslegan
áhuga á sokkahælum, og
gatinu sem kemur oft á
hælana á sokkum, má hann
vera með í félaginu?
Já, þar sem sokkahælar
flokkast undir ýmislegt má
hann vera með og þá munum
við í félaginu hjálpa honum að
sinna áhugamáli sínu um
sokkahæla.
Hvernig getið þið verið saman
í félagi um ýmislegt? Hittist
þið og eruð sitt í hverju
horninu að föndra eitthvað?
Nei, við ætlum meira svona að
hittast og gera það sem maður
getur ekki gert í hinum
félögunum.
Já, segðu mér, hvernig var
annars fyrsti fundurinn, hittust
þið bara og ákváðuð "já, nú
ætlum við að hafa fund um
þetta", hvernig var þetta?
Þá hittumst við í Lystigarðinum,
og við ætlum aldrei að hittast
tvisvar á sama stað, og já, við
semsagt hittumst fyrst í
Lystigarðinum og þá komu nýir
félagar og skráðu sig og það
var enginn alvöru fundur, bara
svona skráning og hugmyndir.
i i'—'i '—»»_ii |
nnynol
Hefur enginn annar fundur
verið haldinn?
Við höfum ekkert haft tíma til
að gera neitt mikið, ég er svo
bissí eitthvað, en eftir áramót,
þá verður þetta tekið sko!
Ég hef heyrt þig nefna
náttfatapartý?
Já, það verður eflaust
náttfatapartý og þá ætlum við
að horfa á einhverja
skemmtilega mynd, og við
ætlum að panta pizzu með
bönunum. Og svo ætlum við
líka að panta pizzu og láta raða
álegginu í andlit.
En ætlið þið ekki að gera
neitt fleira?
Jú, hugmyndir eru um að fara á
skauta, strákar í stelpufötum,
og stelpur í strákafötum, bara
af því að það er gaman að fara
á skauta í stelpufötum og
strákafötum. Svo ætla ég að
nefna það líka að við ætlum að
safna bolum, sem mega
skemmast, ég meina, það eru
600 nemendur í skólanum svo
við hljótum að getum safnað
nógu mörgum bolum, en
stefnan er að reyna að safna
tvöhundruð og einum bol og
ég ætla að klæða mig í þá alla
og slá þar með Islandsmet
Sveppa.
Það verður magnað þegar
það met verður slegið.
Já, það kemur ekkert bara í
blöðin, það kemur í fréttirnar!
Svo erum við í samstarfi við
MyMA því við erum FámýMA,
og við höfum vissulega áhuga á
MyMA því við höfum áhuga á
ýmislegu, og MyMA er
ýmislegt.
Þeir eru svona undirfélag
ykkar?
Já, eiginlega, þar sem þeir hafa
áhuga á einu vissu sem flokkast
undir ýmislegt. Þeir ætla að
gera myndband um okkur sem
verður svo sýnt þegar við
verðum með kynningu í löngu
seinna í vetur. Já, og eitt enn!
Við ætlum að búa til snjókarla
þegar loksins kemur
snjókarlasnjór, og þá ætla allir í
félaginu að gera einn snjókarl
sem á að vera eins og einhver
annar í félaginu, þannig að þá
verður allt félagið til aftur,
nema bara úr snjókörlum.
Nú reyndi ég að hringja í þig í
gær og ná af þér en ég fékk
bara talhólfið þitt og þar
segir þú að þú sért að veiða
geimverur, er það eitt af
áhugamálum þínum?
Já, ég sem sé segi það í
talhólfinu mínu að ég sé úti að
veiða geimverur eins og sannri
ofurhetju sæmir, og ég er
ofurhetja í laumi, en ekki segja
neinum það.
Helga [aðstoðarritstjórij segist
einmitt vera Batman, ert þú
ekki betri en hún?
Jú, vissulega og auðvitað er ég
betri en hún, það er miklu
þarfara að veiða geimverur
heldur en það sem hún gerir.
Helga og þið öll væruð í
skitamálum ef ég væri ekki
alltaf að bjarga ykkur frá
geimverum.
Eru þá MIB myndirnar laus-
lega byggðar á lífi þínu?
Já, Will Smith nær mér einmitt
ógeðslega vel.
En Tommy Lee Jones?
Nei, hann hef ég aldrei talað
við og býst ekki við því að hann
sé að reyna að stæla mig.
Hann átti eiginlega að vera
aðstoðarmaður minn en ég gef
ekki upp hver það er í
raunveruleikanum.
Eru fleiri félög sem þið ætlið
að vera í samstarfi við?
Liklega ekki, ég veit það
eiginlega ekki. Ekkert planað.
Kannski ég fái að vera í
samstarfi við skólafélagið sjálft
og biðji þau um að gefa mér
svona þrjár milljónir svo við í
FámýMA getum skroppið til
Túnis eða einhvers álíka
ýmislegs lands. Kannski
Alandseyja, ef ég fæ bara tvær.
Eitthvað að lokum sem þig
langar að bæta við?
Já, endilega allir að koma í
FámýMA vegna þess að það er
gaman og það vantar alltaf
hugmyndir og fólk og það má
allt. Nema barnaklám, við erum
á móti barnaklámi í FámýMA.
En fullorðinsklám?
Fullorðinsklám er allt annað
mál...
Blaðamaður: Þorgerður Anna
Björnsdóttir
Hafnarstræti 90
Tryggingamiðstöðin
Strandgötu 3
SÍMI 460 2300