Muninn - 18.12.2003, Síða 12
SLOPPMA
Á frekar dimmu desember-
kvöldi hittust fimm unglingar i
kjallaraherbergi á Skóla-
stígnum. Þangað voru þau
saman komin til að spyrja
strákana í SloppMA sloppunum
úr.
Hæst settir í því félagi eru
hinn háæruverðugi Keisari
Baldvin Karel Magnússon 2.G
og ræðismaður Keisarans Björn
ívar Karlsson 3.T.
Þó er sá orðrómur á kreiki að
siðameistari Keisarans hyggi á
valdarán, enda á hann miklu
flottari s lopp en sjálfur
Keisarinn.
Anna: Hvar elst Keisari upp?
Baldvin: Á Eyrarbakka, þar sem
ég ólst að mestu leyti upp á
leikskóla og á skrifstofu föður
míns, þegar Guddý gat ekki
passað mig, annars er móðir
mín ágaet, en hún var heima á
þriðjudögum og föstudögum.
Helga: Það sem maður fer að
velta fyrir sér síðan, er, því þið
eruð nú nánir vinir og mjúkir
menn; hvar kynnist þið?
Baldvin: í Menntaskólanum á
Akureyri, haustið 2001, en ég
talaði ekkert við hann því hann
var með sítt hár og fyrir neðan
mína virðingu.
Björn: Hann var eiginlega bara
hræddur við mig.
Anna: var þetta þá ekkert
rómantískt?
Björn: Tja, bara augnagotur í
mötuneytinu, við vissum vel
hvor af öðrum
Baldvin: já, ég svona glotti
alltaf þegar ég labbaði fram hjá
honum (Baldvin glottir og sýnir
sinn fræga rokkarasvip).
Helga: Ertu þá að segja að
það að Björn hafi klippt sig
hafi verið það sem braut
ísinn?
Baldvin: Nei, reyndar var ég
farinn að tala við hann áður. En
ég man eftir því að þegar ég sá
hann í fyrsta skipti eftir að hann
klippti sig að þá þekkti ég hann
ekki. Ég var staddur á
Reykjavíkurflugvelli og einhver
maður alltaf að horfa á mig. Ég
var farinn að óttast um líf mitt
hreinlega. Það tók mig dágóða
stund að átta mig á hver þetta
var, sem reyndist síðan vera
Bívark. (Innskot: Bívark er
viðurnefni Björns.)
Helga: hvenær ákváðuð þið
að stofna sloppafélag?
Baldvin: Það var nú eiginlega í
fyrra, við ætluðum að stofna
það þá. En svo gerðum við það
ekki því við þorðum það ekki.
Jón: Var ekki sloppafélag í
fyrra?
Baldvin: Nei það var svona
'unofficial'.
Jón: Já, já, svona 'under-
ground-club'?
Björn: Þetta er búið að vera
'underground' lengi.
Baldvin: Eiginlega bara frá því í
fyrsta bekk.
Björn: Eiginlega frá því í
fornöld.
Baldvin: Jááá'eilla!
Björn: Við erum eiginlega fyrstu
mennirnir sem þorðu að rísa
upp og tala opinskátt um
þetta.
Anna: Svipað og frímúrarar
þá? Svona, jafn leynilegt?
Baldvin: Jááá'eilla
Baldvin: Samt eiginlega í fyrsta
bekk þá voru nokkrir félagar
okkar, sem eru í stjórn, sem
áttu sloppa. Ég er bara seinni
tíma maður
Anna: Hvers vegna sloppa-
félag?
Björn: Því það er kúl að vera í
slopp.
Helga: En hvers vegna ert þú
gerður að Keisara? Þeir komu
með þessa hugmynd. Ertu
með einhvern konunglegan
fæðingarblett? Merki hins
útvalda?
Baldvin & Björn: Þetta byrjaði
útaf fóstbræðraskets þar sem
að kona byrjaði alltaf að
undirbúa svakalegan morgun-
verð handa manninum sínum,
svo kom hann framúr og settist
við borðið og sagðist frekar
vilja bara kornflex eða eitthvað
einfalt. Þá fór hún að klæða sig
til að fara út og hann spurði
hvert hún væri að fara og þá
sagði hún: „ef Keisarinn vill
kornflex, þá kornflex skal hann
fá!"
Baldvin: Þá byrjaði ég að láta
alla tala við mig í þriðju
persónu og ávarpa mig sem
Keisarann.
Svolítið eins og Hallbjörn
Hjartar með kúrekann-alter
egóið
Helga: En Björn, hvað kemur
til að þú sættir þig við að vera
einungis ræðismaður Keisar-
ans?
Björn: Þetta var eiginlega
ákveðið í flugvél á leiðinni heim
frá Reykjavík. Þá töluðum við
allir í þriðju persónu um hvor
annan, og eftir það fengum við
okkur Hotmail sem voru vísar
að þessum titlum okkar.
Anna: Björn, í hverju felst
starf þitt?
Björn: Að passa Keisarann, það
er ekkert að því að skeina vini
sína, bara, heiður. Ég er
kornflex-konan. Ég er jú, með
mesta ábyrgðartilfinningu við
hirð Keisarans
Baldvin: Ég er náttúrulega ekki
að gera neitt
Anna: Hverjar eru stöðurnar
innan SloppMA?
Baldvin: Ótrúlega margar, en
það var samt ákveðið að Ásgeir
Berg yrði siðameistari félagsins
- þó er hann frekar ósiðlegur.
Anna: I virðingarröð, takk
fyrir?
Baldvin: Ég nenni ekki að telja
upp allar, það er frekar stór
stjórn og við komum henni ekki
allri fyrir á skráningarblaðinu.
Það varð að henda sumum út
af blaðinu og það olli þó
nokkrum særindum, sem ég vil
nota tækifærið og biðjast
forláts á. Mér hefur alltaf
fundist Stalín vera ágætis karl.
Anna: Mega konur líka vera í
félaginu?
Björn: Já, vissulega, án þeirra
væri ekki félag, jú reyndar, en
samt, þær eru velkomnar.
Félagið snýst eiginlega um það
að gera þeim hátt undir höfði
sem eru letingjar, arabískir
þreytumenn, ganga í sloppum
því þeir nenna ekki að klæða
sig og vakna klukkan þrjú á
laugardögum, eru ógeðslegir
og ganga í sloppum.
Baldvin: Smá snobb samt. Við
bjuggum okkur allir til
ættarnöfn, til þess að vera
ennþá meira „posh". Kennum
okkur gjarnan við heimabæi
okkar eða merk kennileiti frá
okkar heimaslóðum.
Helga: Nú hefur heyrst að þið
hafið ætlað að standa fyrir
kúrkvöldum í Kvosinni?
Baldvin: Þegar við nennum að
skrá einhverja í félagið, það er
okkar mottó „okkur er alveg
sama' og „they need us more
than we need them"
Björn: Síðan verða haldin minni
kúrkvöld á vistinni til að byrja
með.
Anna: Þá bara inni í einhverju
herberginu?
Baldvin: Það hafa aldrei verið
fleiri en við tveir. Við höfum
hlustað á Mars Volta og farið
að sofa, (Baldvin setur upp
kindugan svip og bætir svo við)
ekkert gay sko, við vorum á sitt
hvorri dýnunni.
Anna: Hvenær ætlið þið að
standa fyrir fyrstu uppá-
komunni?
Baldvin: Það verður örugglega
aldrei (sorrí Kristjana). Við
reynum samt örugglega að
halda kúr- eða snobbkvöld
einhvern tímann.
Anna: Er til svartur listi eða er
einhverjir sérstakir í óvild hjá
félaginu?
Baldvin: Mér líkar ekkert vel við
þessa DjamMA gaura þarna,
þeir eru eitthvað svo hressir.
Anna: Greiða sér of mikið?
Baldvin: Já, ég þarf sko ekkert
gel til að greiða hárið á mér
asnalega! Það sem mér finnst
líka mjög fyndið er það að
þessir menn segjast alltaf vera
eitthvað að djamma en nú hafa
meðlimir í SloppMA oftar sést
á Dátanum á fimmtudags-
kvöldum.
Anna: Standa þeir ekki undir
merkjum?
Baldvin: Nei, ég vil koma af
stað Rævalrí við þessa
eymingja.
Helga: Sláum botninn í þetta,
eitthvað að lokum strákar?
Baldvin: Já, við viljum bara
skora á DjamMA að fjölmenna
oftar á Dátann á fimmtu-
dögum, þar sem við munum
berjast við þá, en keppnin mun
samt aðallega felast í því að
mæta arabískt þreyttir í löngu á
föstudögum, auðvitað í
sloppum!
Blaðamenn: Þorgerður Anna
3.A, Jón Einar 3.U og
Hólmfríður Helga 2.G