Muninn - 18.12.2003, Qupperneq 13
FUTURAMA
Formaður Hólmfríður Helga Sigurðardóttir 2.G
Hvað er FuturaMA?
Félag unnenda Futurama, og
eiginlega Matt Groening í
heildina, og þá auðvitað er ég að
tala um Simpsons líka. Síðan spila
MG-ótengdar teiknimyndir inn í
þetta líka, eins og Family Guy og
Ren & Stimpy.
Hverjir eru í stjórn félagsins?
Ég er stjórn félagsins, síðan var
Ásgeir Berg fenginn til þess að
vera varaformaður og svo er
Björk Óskarsdóttir heiðursfélagi.
Skipaðirðu Ásgeir varaformann
vegna þess hve hann og Dr.
Zoidberg eru siáandi líkir?
Nei, það var reyndar af því að
hann minnir mig meira á Mr.
Burns.
Langir kræklóttir fingur?
Já, það er nefnilega það sem
heillar mig við hann. Það er
„potential" í þessum strák.
En Björk? Af hverju er hún
heiðursfélagi?
Það er vegna þess að hún veit allt
um Futurama sem hægt er að
vita.
Nú hefur félagið ekki látið mikið
á sér bera enn sem komið er, er
einhver starfsemi framundan?
Eins og ég sagði í byrjun vetrar
þá er þetta fyrst og fremst költ
"the hypno-toad," og við
stefnum á að safna fé og frysta
stjórnina og áhugasama meðlimi
með okkur í vor. En að öllu gamni
slepptu þá stefnum við Ásgeir
varaformaður á jólakvöldvöku
fyrir jól og þá munum við sýna
jólaþætti.
Hvort heldur þú meira upp á;
Simpsons eða Futurama?
Simpsons hefur náttúrulega fylgt
mér miklu lengur svo það á alltaf
stærra pláss inn undir mínum
vængjum.
Heyrst hefur að þið ætlið að
standa fyrir Futurama-degi í
skólanum, er það satt?
Nei, ekki veit ég til þess. Þó er
hugsanlegt að hefja samstarf við
ÞeMA og hafa þá jafnvel einn
dag í skólanum þar sem fólk er
dulbúið sem Futurama-persónur.
En við höfum í hyggju að halda
eftirhermukeppni einhvern
tímann eftir áramót og mig
langar alveg óskaplega að halda
Mr. Burns kvöldvöku.
Hvernig væri hárið á Bart
Simpson á litinn ef hann væri
alvöru maður?
Svona Scooter-gult eins og hárið
á Baldvin var hérna um árið?
En myndirðu „deita" Moe á
barnum?
Moe er sorglegur gaur.
Þarf hann ekki bara konu í líf
sitt?
Jú kannski, en ég vil ekki vera sú
kona. Án efa.
Hver værir þú ef þú værir
persóna í þáttunum?
Ætli ég væri ekki Philip J. Fry í
Futurama. Álíka steikt í hausnum
og svo er hann líka rauðhærður.
Læknir: „He's got red hair"
Pabbi Fry: „Are you saying that
my son's a commie?"
úr „The luck of the Fryish"
þættinum í þriðju seríu.
Uppáhalds tilvitnun?
„I bet Einstein turned himself all
sorts of colors before he
invented the light bulb."
Homer Simpson úr „Bart the
genius" þættinum í fyrstu
Daginn eftir náði ég í Ásgeir
og plataði hann heim með
mér í Löngu. Við settumst
niður og ræddum málin yfir
mjólk og piparkökum.
Sæll Ásgeir, nú þú ert
háttsettur innan FuturaMA-
félagsins.
Jú það er rétt.
En segðu mér eitt, er það rétt
að þú og Dr. Zoidberg séuð
systkinabörn?
Nei, það er allt á misskilningi
byggt, við erum mæðrasynir.
Hvernig dulbýr maður sig sem
Dr. Zoidberg?
Fyrst reddar maður sér bleikum
uppþvottahanska, svo klippir
maður hann þvert yfir lófann,
u.þ.b. 1 cm fyrir
neðan fingurna.
Loks límir maður
þetta fast á efri
vörina á sér með
glæru límbandi og
voilá! Dr.
Zoidberg kominn.
Viltu piparköku?
Já, þakka þér fyrir.
Viðtalið tók Þorgerður Anna Björnsdóttir
»
Zone...
...engin annars fíokks stofa!
FRAMHALDS- OG HÁSKDLANEMAR MUHJB SKÓLAAFSLÁTTINN!
OPNUNARTÍMI: MÁN & Þfll KL. 9 - 18, MIÐ - FÖS KL. 9 - 20 09 OPIfl Á LAUGAROÖGUM
Zone...
STRANOGÖTU 9 • SÍMI 461 4700 • 600 AKUREYRI
■ • ■ * *