Fríkirkjan - 01.11.1899, Blaðsíða 10
169
Tillögiirnar samþykktar allar í einu hljóði.
Þá var samþykkt i einu hljóði, að kosning sóra Lárusar
Halldórssonar sem prests fyrir söfnuðinn á siðasta fundi sje
gildandi.
Þá voru kosnir þessir safnaðarfulltrúar:
Arinbjörn Sveinbjarnarson með 54 atkv.
Jón Brynjólfsson — 45 —
Þórður Narfason — 43 —
Sigurður Einarsson — 43 —
Gísli Finnsson — 56 —
í safnaðarráðið voru kosnir í einu hljóði
Jón G. Sigurðarson og
Ólafur Runólfsson.
Fundarstjóri skoraði á menn að skrifa undir lögin hjá
Jóni Brynjólfssyni og um leið að skrifa á lista hjá sama nöfn
sín, heimili og nöfn heimilismanna, er segja sig úr þjóðkirkj
unni, og hafa gert það fyrir miðja næstu viku, og er safnaðar-
fulltrúunum falið að tilkynna presti þjóðkirkjunnar úrsögnina.
Því næst var samþykkt í einu hljóði, að guðsþjónusta
byrji undir eins og húsrúm er fengið, og söfnuðurinn fari þeg-
ar að nota prest sinn.
Fundi slitið.
Lög- fríklrkjusafnaðarins í Rcykjavík.
I. kafli.
Nafn safnaðarins og trúarjátning.
1. gr.
Nafn safnaðarins er „hinn evangelisk-lúterski fríkirkju-
söfnuður í Reykjavík".
2. gr.
Söfnuðurinn játar, að guðs orð í heilagri ritningu sje hin
eina algilda og áreiðanlega regla fyrir trú og líferni kristinna
manna, svo og kirkjustjórn og kirkjusiðum.
3. gr.
Auk hinnar postullegu trúarjátningar viðurkennir söfnuð-