Fríkirkjan - 01.09.1901, Page 12
156
Hún reyndi til þess, en það kom allt fyrir ekki. Frú St.
Clare var fædd og uppalin á meðal þræla, og var frá blautu
bamsbeini alin upp við að sjá þá meðhöndlaða eins og hunda.
,Eg er andstæð öllum þessum frelsishreifingum," sagði hún,
„látirðu svertingjann hafa húsbónda yflr sér, gjörir hann sínar
sakir full vel, en geflrðu honum frelsi, þá verður hann latur
og vill ekki vinna. Eg hef margopt séð það. Það er engin
bót að frelsi fyrir hann.“ Hún þverneitaði að fara eptir ósk-
um manns hennar viðvíkjandi Tómasi.
Ophelia gjöiði þessu næst það, sem hún helzt hugði mundi
vera Tómasi til góðs. Hún skrifaði frú Shelby bréf, lýsti fyrir
henni kringumstæðum Tómasar, og hvatti hana til að veita
honum hjálp sina; en bréf þetta kom ekki til skila fyr en um
seinan.
Daginn eptir var Tómas seldur á uppboði ásamt nokkrum
öðrum þrælum.
Illvættur einn í mannslíki að nafni Legree, keypti Tómas
frænda.
Æfi hins gamla, dygga manns, varð nú svo aum að slíku
má naumast trúa. Meðferðin, sem hann varð að sæta hjá
þessum nýja húsbónda, var svo grimmúðleg og samvizkulaus,
að naumast er unnt að lýsa henni. Það nægir að geta þess
að eptir að hann var búinn að þola óumræðilega meðferð
mánuðum saman, þá húðstrýkti Legree hann svo að við sjálft
lá að hann missti lífið. Orsökin til þess var sú að Tómas
hafði neitað að hýða ambátt eina, er hafði móðgað Legree.
Öðru sinni var það að tveir þrælar struku, og Tómas neitaði
að gefa nokkrar upplýsingar um það. Þá varð Legree óður
og bauð þrælum sínum að refsa honum með grimmilegri
húðstroku.
„Eg skal telja hvern blóðdropa, sem til er í þér, og
kreista þá úr þér einn og einn, þangað til þú segir frá þvi,“
sagði Legree ioksins við Tómas.
En Tómas neitaði. Hann leit á húsbónda sinn og sagði:
„Húsbóndi minn, ef þér væruð sjúkur eða deyjandi, og eg væri
fær um að bjarga yður, þá skyldi eg gefa yður hjartablóð
mitt, og ef blóðið í þessum gamla, hrörlega likama gæti frels-
að yðar dýrmætu sál, þá skyldi eg glaður gefa það. Ó, hús-