Fríkirkjan - 01.09.1901, Side 14
158
Kirkjumálin á alþingi 1901.
Yér gátum þess í síðasta tölublaði, að vér mundum minn-
ast nokkuð nákvæmar þeirra kirkjulegu máleína, er fram komu
á alþingi í sumar, og skýra frá meðferð þeirra á þinginu.
Það var alls ekki svo fátt, er kom til umtals á þessu
síðasta þingi af þeim málum, er beinlinis eða óbeinlínis standa
í sambandi við kristindóm þjóðar vorrar. í þessu tölublaði
verður að eins minnzt á tvö siik málefni, sem sé frumvarp það,
er kom frá stjórninni um að stofna fast aðstoðarprestsembætti
við dómkirkjuna í Reykjavík, og styrk þann, er alþingi veitti
á fjárlögunum til hins íslenzka biblíufélags.
a. Aðstoðarpresturlnn.
Eitt af frumvörpum þeim, sem stjórnin lagði fyrir þingið,
fór fram á að stofna fast aðstoðarprests embætti í Reykjavík.
Skyldi prestur sá fá að launum 1500 kr. - úr landssjóði og
einn tíunda hluta af tekjum Reykjavíkur prestakalls.
í athugasemdum stjórnarinnar við frumvarp þetta, var
sem ástæða fyrir þvi tekin fram hin mikla fólksfjölgun í
Reykjavík, en að tekjur prestakallsins hefðu ekki aukizt að
sama skapi, og væri því dómkirkjuprestinum ofvaxið að launa
aðstoðarprestinum, enda hafi það og rýrt tekjur dómkirkju-
prestsins að nokkrum mun, að nýlega hafi myndazt fríkirkju-
söfnuður í bænum.
En þau urðu forlög þessa frumvarps, að það féll í valinn
þegar við fyrstu umræðu, án þess að mörgum orðum væri um
það eytt. Þótti vist sumum af kirkjunnar mönnum mikið
fyrir því, og hafa án efa skoðað það sem slæman fyrirboða um
útreið annara kirkjulegra mála á þinginu. „Yerði ljós“ kall-
aði það „fyrsta afreksverk" þingsins, að fella þetta frumvarp.
Alþingi mun hafa litið svo á, að dómkirkjuprestakallið
hefði nægar tekjur handa tveimur prestum. Menn þykjast
fara nærri um það, að tekjur þess hljóti nú að stappa nærri
10,000 krónum, ef öll kurl koma til grafar. Og í annan stað
gat það ekki dulizt þinginu, að ef hinn nýmyndaði fríkirkju-
söfnuður á framtíð fyrir sér og stækkar. þá verður að sama
skapi minni þörf á föstum aðstoðarpresti í Reykjavik. Enn