Fríkirkjan - 01.10.1901, Síða 8
168
Manstu ei, hvað mildur Jesús
mælti jörðu á,
þegar föðurhúsin háu
himni blika frá?
Jú, þau blessuð ástarorðin
elskar sála mín;
og mér stjömur bjartar benda
beint, minn Jesú, upp til þín.
Upp til þín :,:
og mér stjörnur bjartar benda
beint, minn Jesú, upp til þín.
Ljúft er sjón í hæð að hefja
heimi spiltum frá;
ljúft er raddir lífs að heyra
landi dauðans á.
Hvað mun þá, er lifs á landi
ljóssins dýrð mér skín?
þá eg héðan heim er kominn,
hjartkær Jesú, upp til þín.
:,: Upp til þín :,:
þá eg héðan heim er kominn
hjartkær Jesú upp til þín.
Lát mig heyra himinraddir
hjarta mínu i,
og úr heimi ávallt mæna
yfir jarðnesk ský.
Gegnum dauðans dimma skugga
dýrðar bjarmi skin;
því eg veit, að ieiðin liggur,
lífsins herra, upp til þín.
:,: Upp til þín :,:
já, eg veit, að leiðin liggur,
lífsins herra, upp til þín.