Fríkirkjan - 01.10.1901, Qupperneq 9

Fríkirkjan - 01.10.1901, Qupperneq 9
169 Tómas frændi. (Niðurl.) Brófið, sem Ophelia hafði skrifað frú Shelby, hafði legið einn eða tvo mánuði á einhverjum afskekktum póstafgreiðslu- stað, og komst eigi til skila fyr en allt var um garð gengið og Legiee var búiun að kaupa Tómas frænda. Frú Shelby las bréfið með hinni mestu hluttekning, en í bráðina var henni með öllu ómögulegt að verða við tilmælum brófsins. Hún var að hjúkra manni sínum, sem lá mjög hættu- lega veikur. Georg Shelby, sem nú var orðinn fulltíða maður, var hennar eina stoð og stytta um þessar mundir, því hún treysti engum öðrum til að gegna störfum föður hans. Faðir hans andaðist nokkrum dögum siðar, og frestaðist ferð Georgs þá enn um hríð. XIX. Andlát Tómasar frcenda. Pað fór hrollur um Georg Shelby oghonum varð ilit fyrir hjartanu, er hann gekk inn í kofann, þar sem Tómas frændi hefði legið í tvo daga. „Er það mögulegt — er það mögulegt?" sagði hann og kraup á kné við flet hans. „Tórnas frændi; veslings, veslings gamli vinur!“ Það var eitthvað í málrómnum, er þrengdi sér að eyra hins deyjandi manns; því hann hreifði höfuðið ofurlítið og brosti. Tár, sem voru karlmannshjarta hins unga manns tíl sóma, streymdu niður um kinnar hans, ei- hann laut yfir gamla vininn sinn. „Ó, kæri Tómas frændi! Littu upp, talaðu við mig einu- sinni enn þá. Sjáðu! Það er hann Georg, hann litli Georg þinn. Þekkirðu mig ekki, Tómas frændi?" „Master Georg!“ sagði Tómas, og opnaði augun; hann talaði í mjög veikum róm. „Master Georg!“ Hann virtist eiga bágt moð að átta sig. Smám saman rankaði hann þó við sér, hið sljóa augnaráð skirðist og það birti yfir öllu andliti hans; hann fórnaði upp mögru höndunum og tár runnu niður kinnarnar.

x

Fríkirkjan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fríkirkjan
https://timarit.is/publication/464

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.