Ljósvakinn - 01.09.1924, Síða 4

Ljósvakinn - 01.09.1924, Síða 4
66 LJÓSVAKINN var flutt til allra manna. — Hið fyrsta af hinum stærri trúboðsfélögum var stofnað af Baptistum, það gerði Carey og meðstarfendur hans árið 1792. Eft- ir það kom hver af öðrum frá fjarlæg- um löndum og komu á fót trúboðs- stöðvum meðal þjóða og tungumála, sem mönnum hafði áður verið ókunn- ugt um. Þannig var það, að trúboðs- starf vorra tíma byrjaöi. Fagnaðarboðskapur fyrirframsagður í spádómunum. Hinir sömu spádómar Heilagrar ritn- ingar lýsa endalokum þessa tímabils, sem sérstakt er að þekkingu og vax- andi Ijósi. t*að skyldi enda með sér- stökum boðskap til allra manna um að vera viðbúna dóminum, boðskap um að búa sig undir það, að Kristur kemur i dýrð sinni til að afmá synd og dauða. Þessari trúarhreyfingu síðustu tíma, er lýst af Jóhannesi postula og spá- manni í fjórtánda kapítula Opinberun- arbókarinnar. Aðalatriðin eru þessi: 1. Hún skyldi kunngera »eilíft fagnað- arerindi«, gleðilegan boðskap um frelsara, sem getur frelsað frá synd. 2. Hún skyldi fara skjótt yíir, þar eð hraði hennar er táknaður með engli, sem flýgur um mið-himininn. 3. Hún skyldi ná til »allra þjóða, kyn- kvisla og tungumála«. 4. Hún hvetur alla menn til að tilbiðja þann, »sem gert befir himininn, jörð- ina, hafið og uppsprettur vatnanna«. 5. Hún kunngerir, að komin sé »stund dóms hans«, og með tilliti til þessa mikilvæga viðburðar, bendir hún mönnum af öllum þjóðum og kyn- kvíslum á þau skilyrði sem útheimt- ast til að geta staðist i dóminum, nefnilega að halda »boðorð Guðs og hafa Jesú trú«. Þannig lýsir Heilög ritning þessum alheimsboðskap hinnar síðustu trúarhreyfingar. Þar geta allir lesið hann. Óg að lesa þetta og skilja, er sama sem að heyra hið guðdómlega kall, og hver, sem heyrir, á að ganga i lið með þeim, sem flytja þenna boðskap út um allan lieim. Fagnaðarárið komið. Rétt 50 ára tímabil er nú lið- ið síðan S. D. Aðventistar tóku sig upp frá Aroeríku og lögðu út á höf- in til þess að flytja þenna boðskap út um allan heim, eins og spáð er um i fjórtánda kap, Opinberunarbókarinnar. Drottinn hefir á dásamlegan hátt bless- að fámennan og smáan hóp manna og veitt þeim náð til þess að flytja þenna boðskap vorra tíma til allra þjóða. Ttl þess að geta boðað þetta eilifa fagnað- aðarerindi öllum mönnum, útheimtist það, að alt það, sem nauðsynlegt er lil þess að hjálpa, lækna, fræða og frelsa mennina, verður að takast til notkunar. Hjálparmeöul þau, er vér höfum í öll- um löndum eru:

x

Ljósvakinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.