Ljósvakinn - 01.09.1924, Qupperneq 18
80
LJÓSVAKINN
LJÓSVAKINN,
málgagn S. D. Aöventista, kemur út einu sinni i mán-
uöi. — Kostar kr. 2,75 árgangurinn.— Gjalddagi 15. jan,
og fyrirfram.— Útg.: Trúboðsstarf S. D. Aöventista. —
Ritstjóri: O J. Olsen. Sími899. Pósth. 2C2. — Afgreiðslum.
J. G. Jónsson, Ingólfsstr. 21 B.
væri geflö »kristilegt« nafn. Viö nefndum
manninn Jóhannes og konuna Mariu.
Fyrir stuttum tíma heimsótti ég aftnr þenn-
an sama stað. Tuttugu manns gáfu sig pá
fram er óskuðu aö skírasl. Meðal þessara
var ein alvarlega hugsandi, ung kona, dóttir
Jóhannesar og Mariu. Viðvíkjandi spurningu
minni um hvernig stæði á þvi að hún ósk-
aði að skfrast, sagði hún: »Eg trúi að faðir
minn hafl fundið hinn rétta veg, þann er til
frelsunar leiðir. Ég óska einnig að verða
Guðs barn«.
Bangalore. — G. G. Lowry.
«--------------------
JESÚS KALLAR.
Heyr, nú kallar herrann Jesús:
»Hver vill fara’ og vinna mér?
Akrar hvítir allir standa,
uppskeran i hönd því fer«.
Indæl laun hanri öllum býður,
og hann kallar nú á þig,
hver vill glaður honum svara:
»Hér em ég; send mig, send mig«.
Pótt ei talir eins og englar,
eða Páll á fyrri tíð,
orð þín lýst fá elsku Jesú
er hann dó fyrir’ sekan lýð,
ef með dunum dómsins hörðum,
dauðans þræl ei skelft þú fær,
litlu börnin leitt þú getur
líknar faðmi Jesú nær.
Engan lát þú af þér heyra:
aEkkert verk er handa mér«,
meðan sálir deyja dýrar,
Droltinn kallar eftir þér.
Að þvi starfl gakk með gleöi,
Guð sem leggur fyrir þig;
herm þú skjótt er herrann kallar:
»Hér em ég; send mig, send mig«.'
^ ---:--4
TIL LESENDANNA.
Petta blað, 9.—10. tbl. Ljósvakans, er að
efni og öðrum frágangi öðruvísi en blaðið
er vant að vera, og er þannig vandað til
þess — og upplagið aukiö — i tilefni af heið-
ingjatrúboðinu i fjarlægum löndum. Verður
blaðið látið af hendi gegn minst 1 kr. gjöf
til nefndrar starfsemi, en þakksamlega verð-
ur tekið á móti stærri og minni gjöfum.
Peir, sem eru kaupendur að Ljósvakanum,
fá blaðið að sjálfsögðu án nokkurs slíks
framlags, nema sem þeir vilja leggja af mörk-
um til þess að taka þátt i þessari hjálp til
þeirra, sem lifa án þekkingar á hinum sanna
Guði.
Síðastliðið haust gengumst vér fyrir fjár-
söfnun til heiðingjanna, og þökkum vér öll-
um sem þá gáfu stærri og minni gjafir. Pað
er gleðilegt, að sjá og heyra áhugann fyrir
boðun fagnaðarboðskaparins meðal heið-
ingjanna.
Skipun frelsara vors hljóðar svo: »Farið
þvi og kristnið allar þjóðir«. Allir geta á
einhvern hátt tekið þátt í þessu verki, sumir
með kröftum sinum og hæflleikum en aðrir
meö fé sinu og bænum.
Blaðið skýrir meðal annars dálitið frá
boðun fagnaðarboðskaparins og framgangi
hans i ýmsum löndum heimsins, þar sem
íbúarnir hafa lifað í þekkingarleysi á Guði
og frelsara vorum Drottni Jesú Kristi.
Pað fé, sem nú safnast inn til heiðingj-
anna, verður, eins og síðastliöið haust, sent
til aðalskrifstofu vorrar í Evrópu (í Bern,
Sviss) til ráðstöfunar.
Slík fjársöfnun sem þessi, fer fram hjá
starfi voru um allan heim, nú um þetta leyti,
eins og undanfarin ár, og munu þeir pen-
ingar, sem inn koma, gera það mögulegt, að
færa mörgum sálum, sem enn sitja í and-
legu myrkri, hið bjarta ljós fagnaðarboð-
skaparins. Pá hafa lika þeir, sem vinna að
þessu verki, ásamt góðfúsum gefendum, náð
tilgangi sinum.
Drottinn blessi þessa starfsemi og gefi
ríkulegan ávöxt sínu nafni til dýrðar og sál-
um til eilifrar frelsunar.
Prentsmiöjau Gutenberg,