Ljósvakinn - 01.09.1924, Page 7

Ljósvakinn - 01.09.1924, Page 7
69 LJÓSVAKINN »0g Jesús fór uin allar borgirnar og porpin . ... og læknaði hvers^konar sjákdóma og huers konar krankleikan. (Matl. 9, 35.J. L.ækningastarfsemi vor. Þegar Jesús var hér ájörðinni, varði hann meiri tima til þess að lækna þá sem sjúkir voru [og hjálpa hinum þjáðu, lieldur en til að prédika. Hin fyrstu níu kraftaverk hans, sem um er talað hjá Matteusi, voru öll lækn- inga-kraftaverk. Með hinu kærleiksfulla lífi sinu, staðfesti frelsarinn kenningu Biblíunn- ar og opinberaði þannig fyrir mannkyninu kærleika Guðs og frelsunarkraft fagnaðar- boðskaparins. Kristur var »Orðið«. »Og orð- ið varð hold«. Frá þeim tíma er kristniboðsstarf vort fyrst byrjaði, hefir starfsemin fyrir þá sjúku og þjáðu staðið í nánu sambandi við það. Petta líkamlega miskunarverk er nú fram- kvæmt af yfir 2500 læknum, hjúkranarkonum og kristniboðum og hefir það rutt sér braut til flestra landa. Vér höfum 40 heilsuhæli og spitala ásamt nuddlækningastofnunum víðsvegar í heim- inum t. d.: í Afríku, Indlandi, Kína, Japan, Iíóreu, Bandarikjunum, Canada, Suður-Ame- ríku, Ástraliu, Englandi, Pýskalandi og í hinum skandanavísku löndum. Árlega er tekið á móti yfir 200,000 sjúk- lingum á þessar stofnanir og er þeim veitt hjálp og hjúkrun af læknum og hjúkrunar- fólki. Á 23 skólum er vér höfura til fullkomnun- ar í kristniboðs- og hjúkrunarstarfseminni og á læknaskólum vorum í Loma Linda og Los Angelos í Kaliforníu, tekur árlega fjöldi af hinu unga fólki voru próf í læknisfræði. Þessir læknar og hjúkrunarfólk vigja líf sitt og liæfileika til þess að lækna hina sjúku og kenna fagnaðarerindið. Margir þeirra fórna lífi sínu fyrir þetta starf úti á hinum fjarlægu og aðþrengdu kristniboðssvæðum. A. W. Truman.

x

Ljósvakinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.