Ný kristileg smárit - 01.06.1894, Page 1
NY KRISTILEG SMARIT,
QEPIN ÚT
AÐ TILHLUTUN BISKUPSINS YFIE ÍSLANDI.
Nl’. 8 Og' 9 !] Fylgirit með Kirkjublaðinu. 1894.
Skólameistarinn.
Skólakennarinn í Bernsdorf í Slesíu, gamli Leb-
recht Friedefeid, sat fyrir framan borðið sitt, sem
tók upp mestallt rúmið í hinu litla herbergi, og
horfði á dálítinu bunka af silfurpeningum á borð-
iuu, og tautaði við sjálfan sig: »1 þessu embætti
verð jeg gamalloggrár og alltaf eru launin söm og
engin von um að fá betri kjör«. jpær voru fremur
daprar hugsanir hins góða og gamla skólameistara
þennan sunnudagsmorgun. Allt var þó til yndis í
náttúrunni í kring um hann í vorblíðunui. Allt
var hljótt og kyrrt. Hvergi bar á skugga, og vind-
urinn hafði víst tekið á sig náðir og fengið sjer
lúr uppi í stóru eikinui á móti glugganum, það var
rjett svo að blöðin bærðust, þegar hann andaði
frá sjer. Lækurinn, sem rann fram hjá skólahús-
inu, var orðinn svo lítill í þurkunum, að það
heyrðist varla í houum suðið við sefgróinn bakk-
ann. Ilminn lagði inn um opinn gluggann frá
aldintrjánum, og það tindraði eun á seinustu dagg-
ardropana, sem voru að þorna í blessaðri morgun-
sólinni. Milli trjánna sást í rauð þökin í þorpinu