Ný kristileg smárit - 01.06.1894, Side 3

Ný kristileg smárit - 01.06.1894, Side 3
59 inn í djúpum hugsunum, og svípurinn bar það með sjer, að þær voru ekki ánægjulegar. f>á var þögnin allt í einu rofin við skæran og mjúkan söng, og söngurinn kom frá litla stofufje- laga hans, skógarþrestinum, sem var að prísa góða veðrið í búrinu sínu úti við gluggann. Skólameist- arinn hafði kennt fuglinum síuum lagið við uppá- haldssálminn sinn, að minnsta kosti kunni þröstur- inn lagið nógu vel til þess, að skólameistarinn skildi það; það var lagið við hinn inndæla sálm Páls Gerhards: »Á hendur fel þú honum«. Hann var svo áhyggjulaus litli fuglinn og kvað eina lagið, sem hann kunni, með dillandi hljóðum. Skólameistarinn lyptist í sætinu og glaðnaði all- ur, og hann tók undir með fuglinum og söng með snjallri og fagurri röddu: «Á hendur fel þú honum, sem himna stýrir borg, það allt, er áttu’ í vonum, og allt, er veldur sorg. Hann bylgjur getur bundið og bugað storma her; hann fótstig getur fundið, sem fær sje handa þjer«. »Blessaður litlí fuglinn minn«, sagði skólameist- urinn, »þakka þjer fyrir sönginn. Skammast máttu þín, gamli Friedefeld. Hiinnafaðirinn hefir annazt þig það sem af er æfinni, og mun sjá þjer borgið það sem þú átt ólifað. Vertu hughraustur og láttu þjer lynda að vera hinn lítilmótlegasti þjónn í vín- garði Drottins, Guð gleymir þjer ekki. Ætlarðu að fara að missa móðinn og mögla á gamals aldri? Og það á blessaðan sunuudagsmorguuinn,

x

Ný kristileg smárit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný kristileg smárit
https://timarit.is/publication/496

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.