Verði ljós - 01.10.1896, Blaðsíða 3

Verði ljós - 01.10.1896, Blaðsíða 3
147 liði voru farborða; en hvað er þá betra til en að taka vængi bæn- arinnar og svífa upp að hásæti guðsV „Eigir þö við böl að búa, óttaet ekki bæniu ber oss bíðir freistni, sorg og þraut, beina leið í drottius skaut.“ Þegar vjor enn freniur eigum vin cða ættingja, seni gcngur villugötur og glapstigu og ckki vill vcra lians barn og elska liann, sem elskaði oss að fyrrabragði, hvaða meðal er þá öflugra, til að koma konum á rjetta leið, en bænin. Mörg dæmi cru til þess, hví- líku slík bæn hefir áorkað. Vjer viljum hjer aðeins minna á kon- una Moniku, móður Ágústínusar kirkjuföður, er með óþreytandi bæn fyrir manni sínum og syni fjekk þvi til leiðar komið, að þeir snerust til sannrar trúar. Bænin er andardráttur hins kristilega lífs. Þvi innilegri sem trú vor er, því heitari og hjartnæmari verður bæn vor. Ef þörf vor og löngun til að biðja verður minni, ef altaf iíður lengri og lcngri tími milli þess að vjer biðjum, og bænin sjálf verður kaldari og á- kugaminni, þá sýnir þetta, að trúarlíf vort er í hnignun. En kvernig fer þá ef bænin hættir með öllu? Reynslan sýnir oss, að andardrátturinn er skilyrði fyrir lífi líkamans, og eins er bænin skilyrði fyrir voru andléga líii. „Andvana lik til einskis ueytt bvo er &n bænar sálin snauð, er að sjón, heyrn og in&li sneytt; sjónlaus, köld, dauf og rjett steindauð.“ Enginn er sá, sem ekki verði með angri og trega að játa, að bæn hans sje jafnan veikburða og ófullkomin, vcrði að játa, að hann opt gleymi að lypta hugannm til guðs og leita hjálpar hans eða gefa honum dýrðina, þegar lijálpin cr þegin. En ekki dugar að örvinglast yíir því eða leggja kondurnar í kjöltuna, heldur eig- um vjer því fremur að biðja guð, biðja hann að senda oss sinn anda, anda bænarinnar, svo oss verði bæði ijett og ljúft að biðja hann af alliuga og án aíláts. „Að biðja scm mjer bæri, mig brestur stórum á. Miun herra, Kriatur kæri, æ, kenu mjer íþrótt þá. Gef yndi mitt og iðja það alla daga sje, með bljúguin liug að biðja sem barn við föður kuje“. S. P. Sivertsen.

x

Verði ljós

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.