Verði ljós - 01.10.1896, Blaðsíða 5

Verði ljós - 01.10.1896, Blaðsíða 5
149 en sem henni er mest umhngað um að ná á sitt mál, á þcssa leið: „Þarna getið þjer sjálfir sjeð, hvílík og hvers éðlis þessi lífsskoðun er, scm kirkjan heldur fram; hoima fyrir prjedikar hún umburðar- lyndi og stærir sig af því að vera, öllum öðrum trúarbrögðum fremur, gegnsýrð af þessari dýrðlegu einkunn kærlcikans, en strax þegar hún vcrður þess vör, að einhvcr cða einhverjir ckki vilja í auðmýkt beygja sig fyrir kreddum hcnnar, hefir hún svo gjörsam- lega gleymt kenningu sinni, að hún með hroka og harðýðgi of- stækisins ræðst á sjerhverja frjálsa rannsókn, vill hopta og kúga sjerhvorja framsóknarviðleitni hins mannlega anda og rjúfa fram- faralögmál tilverunnar“! En fjöldinn hlustar undrandi á þetta og gleipir við því sem góðri og gildri vörn, af því að hann fær ekki koinið auga á hið fráleita í slíkri rökseindaleiðslu. Og til þess svo að styrkja fjöld- ann í þeirri skoðun, að svona sje nú hin kristna lífsstefna, drcgur vantrúin fram af nægtabúri sínu öll þau söguleg dænii, er geta sýnt, á hve lágu stigi umburðarlyndið hafi opt staðið i kirkjunni fyr á tímum, já ekki aðeins dregur það fram, som mcð sanni má segja um, að sje runnið af rót kirkjulegs umburðarleysis, hcldur ieitast hún við að setja öll möguleg hryðjuverk, ójöfnuð og rang- sleitni í samband við kirkjuna og ,,ofstæki“ hennar, þótt, þau sjeu af alt öðrum rótum runnin. Þannig dvelur vantrúin mcð sjerstaklegri ánægju við hryðju- verk rannsóknar-dómstólanna á miðöldunum, við Húgenotta-ofsókn- irnar og galdrabrennurnar, eða liún reiknar út, með nákvæmni mestu, hvc margir men'n liafi látið lífið í hinum svokölluðu trúar- bragðastyrjöldum, eða hún loks dvelur við afdrif einstakra manna, bendir á menn oins og Húss og Savonarola eða Mikael Servede og Guíordanó Brunó o. fl. og útmálar afdrif þeirra með hinum hrylli- legustu iitum, til þess að varpa sem skærustu ijósi á umburðar- leysi kirkjunnar og hinnar kristilegu lifsskoðunar. Allt þctta hef- ir áhrif á fjöldann, sem einnig hjer lætur blekkjast af villandi röksemdaleiðslu vantrúarinnar. Vantrúin voit það ofur vei, að ekkcrt, af öllu þcssu er verk kristindómsins eða hinnar kristilegu lífsskoðuriar í sjálfu sjer, heldur aðeins verk þeirra manna, er ým- ist af blindum ákafa fyrir útbreiðslu trúarinnar eða varðvcizlu þcss, er þeir hugðu vera rjetta trú, gleymdu þvi, að góðum til- gangi verður aðeins náð með góðum meðulum, cilegar verk manna, sem fyrir skemmilegs ávinnings sakir notuðu trúna sem skálkaskjól, til þess að hylja með vonzku sina og motorðagirnd.

x

Verði ljós

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.