Verði ljós - 01.10.1896, Blaðsíða 14

Verði ljós - 01.10.1896, Blaðsíða 14
158 engan veginn í lausu lopti bygð, heldur styðst hím við ómótmæl- anlega sögulega reynslu. Öll söguleg reynsla vottar, að tíðar alt- arisgöngur og fjörugt trúarlíf fari saman. Það er söguleg stað- höfn, að livar sem altarisgöngum fcr fækkandi, stendur þetta í sambandi við hnignandi trúarlíf, eins og það lika á hinn bóginn er víst, að hvar sem kristileg trú og kristilegur áhugi er í blóma, þar er guðs borð rækilega sótt. Vjcr íslendingar erum ekki undan- þegnir þessari reglu. Hinar sorglegu tölur hrópa: Trúariíflð er í hnignun á íslandi! — Hinar sorglegu tölur hrópa! En það er eins og menn veiti því ekki eptirtekt, — það er eins og mcnn sjái ekki, hvílíkur voði er hjer á ferðum og livílík liætta cr búin hinu kristilcga lífi þjóðar vorrar, ef þessi vanrækzla fer í vöxt hjer eptir eins og hingað til. Að minsta kosti hefir enginn kveðið upp úr með það, svo vjer vitum til, opinberlega, og hvorki á prcstastefnunni í fyrra njo í ár kom fram cin einasta rödd, hvorki að ofan nje að neðan, er mint- ist á þetta alvarlega mál. En hjor dugir ekki að sitja aðgjörða- laus með höndurnar í vösunum og hugsa að alt jafni sig af sjálfu sjer. Hinar sorglcgu tölur kaila alla þá, sein enn unna kristindómi og kirkju á meðal vor, hvort sem þoir eru í tölu kcnnimanna eða leikmanna til ráðstefnu, til þess að íhuga, hvað hjer sje að gjöra, hvernig ráðin verði bót á þessari mcinsemd, sem vjer sjáum mcð berum augum vera að grafa um sig ár frá ári og sýkja æ fleiri og fleiri af limum kirkjulíkamans. Framtíðarhagur hinnar íslenzku kirkju er kominn undir því, að þessi voðalega meinsemd verði skor- in burtu, áður en hún hefir valdið enn meiri eyðileggingu, því það lilýtur hver einasti sannkristinn maður að geta sjeð og skilið, að þegar cnginn fa:st framar til að sinna náðarborði drottins, þá fer kirkja Jslands að verða lítið annað en nafnið tómt. Guð geíi mönnum eyra og hjarta fyrir þessu alvarlega mál- efni, svo að hinar sorglogu tölur hafi ekki til einskis hrópað! J. H. Ritfregn. Hiblíuljóð ei>tir Valdimar Briem I. Rvík. 1896 Kosttmðariti. Sig. Krist- jánsson. X-)-415 bls. Vorð: 4,00 kr. í kápu. Nlx er fyrra bindi pessa merkilega ljóðasafus kornið íir prontsmiðjuuui og

x

Verði ljós

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.