Verði ljós - 01.06.1904, Page 2

Verði ljós - 01.06.1904, Page 2
82 VERÖI LJÓS! himins, og eru englar, maktarvöld og höfðingjar honum undirgefn- ir“ (1. Pét. 3,21.22.). — „Hann meðtók af guði föður heiður og dýrð, ]>á þvílík raust barst honum frá liinni hátignarfullu dýrð: þessi er minn elskulegur sonur, sem ég hefi velþóknun á“ (2. Pét. 1, 17., sbr. söguna Lúk. 9,29. um ummyndun Jesú á fjallinu). Jóhannes segir í bréfum sínum: „Ef einhver syndgar, þá höf- um vér árnaðarmann lijá föðurnum, Jesúm Krist hinn réttláta, og hann er forlíkun fyrir vorar syndir og allrar veraldarinnar syndir, og á því vitum vér, að vér þekkjum hann, ef vér varðveitum hans orð (1. Jóh. 2, 1). Hver er framar lygari en sá, sem neitar að Jesús sé Kristur? Þessi afneitar föðurnum og syninum. Hver, sem afneitar syninum, hefir ekki heldur samfélag við föðurinn" (2, 22.). „I því opinberast elska guðs til vor, að guð sendi sinn eingetinn son í heiminn, svo að vér skyldum lifa fyrir hann“ (4, 9). „Vér höfum séð og vitnum, að faðirinn hefir sent soninn, frelsara heims- ins. Hver sem viðurkennir, að Jesús sé guðs sonur, i honum er guð stöðuglega og hann í guði“ (4, 14). „Hver sem trúir, að Jesús sé Kristur, er af guði fæddur“. „Hver getur sigrað heiminn, nema sá sem trúir, að Jesús sé guðs sonur?“ „Hver sem ekki trúir guði, hefir gert hann að lygara, af því hann hefir ekki trúað þeim vitn- isburði, sem guð hefir vitnað um sinn son“ (5, 1. 5. 10). „Náð, miskunn, friður sé með yður frá guði föður og drotni Jesú Kristi, syni föðursins i sannleika og elsku“ (2. Jóh.). Þá eru að eins fá orð úr hinni seinustu bók bibliunnar hér að lútandi. Þar stendur: „Náð sé með yður og friður af Kristi, þeim trúa vottinum, frumhurði framliðinna, höfðingja jarðarinnar konunga, honum, sem elskaði oss og þvoði oss af vorum syndum með blóði sínu; honum sé dýrð og kraftur um aldir alda“ (1, 5). „Hann er sá fyrsti og síðasti, .'sá sem dó og endurlifnaði“ (2, 8); liann rannsakar hjörtun og nýrun“, (2,23), hann hefir lykil Davíðs, sem lýkur svo upp, að enginn læsir aftur, og læsir svo aftur, að enginn lýkur upj) — sá óbrigðuli, sá trúi og sanni vott- urinn, upphaf guðs sköpunar“ (3, 7.14). „Ljónið af Júda ættkvísl hefir sigur unnið. Lambið slátraða er verðugt að meðtaka vald og ríkdóm, vizku og kraft, heiður, dýrð og þakkir“ (5,5.12.). „Lambið er drottinn drotnanna og konungur konunganna“ (17, 12.). Hvað skulum vér þá segja að öllu þessu heyrðu? Megum vér ekki taka oss í munn orðin (Hebr. 12, 1.—3.): „Fyrst vér erum umkringdir af slíkum vitnatjölda, þá léttum á oss allri byrði og viðloðandi synd og rennum þolgóðir skeið það, sem oss er lýrir-

x

Verði ljós

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.