Verði ljós - 01.06.1904, Blaðsíða 7

Verði ljós - 01.06.1904, Blaðsíða 7
VERÐI LJÓS! 87 Ég og faðirinn erum eitt“ (10, 27). „Það sem faðirinn gerir, það gerir og sonurinn sömuleiðis, til þess að allir heiðri soninn, eins og þeir heiðra föðurinn'* (5, 10. 23). „Ég er upprisan og Iífið; sá sem trúir á mig, hann mun lifa þótt hann degi“ (11, 25). Ilann kveðst hafa vald, til að fyrirgefa syndir á jörðu. Hann kveðst muni upprisa á 3. degi (Matth. 17,23, 20,19). „Átti ekki Kristur að líða þetta og ganga inn í dýrð sína?“ (Lúk. 24,26.). Og til hvers er alt þetta skrifað? „Þetta er skrifað, til þess að þér skuluð trúa, að Jesús er Kristur sonur guðs, og til þess að þér, sem trúið, hafið lífið í hans nafni (Jóh. 20,31)“. Aðalstefnan í öllum ræðum Jesú er, að hann sé einka-upp- spretta als hjálpræðis fyrir alla menn á öllum tímum, ogpost- ular hans vitna: „Ekki er hjálpræði i neinu öðru en nafni Jesú Krists“. „Það er fullkomnað“, mælti hann, áður hann hneigði höfði og gaf upp andann, og hann gat mælt svo, guðmaðurinn, en hver manna má svo mæla? Er ekki alt vort verk hálfverk? Ofullkomleikinn er markið á öllu voru verki. Því verður ekki leynt. Játum það hreinskilnislega. Hugsum ekki hærra um oss en hugsa ber. Játum þörf vora á frelsaranum syndaranna, á því lambinu guðs, sem ber heimsins synd, og þvær oss, helgar, hreinsar afvið- loðandi synd. Því að syndarar erurn vér allir, og kynnum ekki einu orði að svara til þúsund, ef í réttlætisdóm skyldi gengið. „Þektu sjálfan þig“. Látum ekki syndina liggja oss í léttu rúmi. Hún er engin lítilvæg vöntun, sem vér getum smámsaman bætt upp og bætt úr sjálfir með betri upplýsingu. Ilún er eðlisbrestur, hún er óvinátta við heilagan og réttlátan guð. Hún situr í rótum hjarta míns, í dýpstu fylgsnum eðlis mins. Ég er dauður í synd minni, annarstaðar að þarf lífsstraumur að koma, ef það sem dautt er, á að lifna og lifa. Og lífsstraumurinn er kominn frá lífgjaf- anum, annarstaðar að gat hann ekki komið. Reynslan er, að Jakobs stiginn verður ekki reistur af jörðu til himna, heldur verður að rétta hann af himnum ofan niður til jarðar. Að sjá guð, get- um vér ekki tekiö eins og herfang. Maðurinn getur ekkert tek- ið, nema honum sé gefið það að ofan. Guð verður að opinbera sig fyrir oss. Annars finnum vér liann ekld. Hann hefir útvalið oss i Kristi, áður en veröldin var grundvölluð, til þess að vér skyldum vera heilagir og flekklausir fyrir hans augliti, og af yfir- taks gæzku sinni fyrirhugað oss barnarélt hjá sér fyrir Jesúm Krist. Ilann fann ráð til að afplána synd vora, til þess að lifga oss, sem

x

Verði ljós

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.