Nýjar kvöldvökur - 01.02.1911, Síða 3

Nýjar kvöldvökur - 01.02.1911, Síða 3
ÚR BLÖÐUM JÓNS HALTA 27 sáran. Herðarnar á henni kiptust við af þung- um ekka. En undir lok ræðunnar sá eg að grátekkinn hvarf, það fór um hana titringur, og höndin kreptist í klútnum, sem hún hélt fyrir andlitinu, svo að strengdi á handarbakinu og hnúarnir hvítnuðu. Svo sat hún eins og steingervingur fram eftir vessinu á eftir ræð- unni. Ræðan hafði óþægileg áhrif á mig. Rað var fyllilega auðheyrt á henni, að presti hafði verið kulkalt til Jóns, en vildi þó reyna að vera sannorður eftir föngum. En þar hafði hann ekki annað að styðjast við en orðasveim- inn og almenningsálitið á Jóni — alveg það sama, og kom fram hjá kerlingunni í selinu. Það var ekki minst einu orði á þessa rauna- legu æfi, þar sem hann var og varð að vera sjálfum sér og öðrum þung byrði, eða þetta hörmulega slys, sem því olli. Nei, slysið varð að sjálfskaparvíti, að illu glappaskoti, sem ekki dró eftir sig annan dilk en makleg málagjöld. Þegar vessið var búið, hófu fjórir menn UPP kistuna, báru hana til grafar og hleyptu henni ofan í gröfina í fjórum reiptöglum. Presturinn jós hana moldu, grafarmennirnir mokuðu ofan í af kappi; svo var gengið aftur til kirkju og lokið við sálminn. Jarðarförin var á enda. Fólkið gekk til stofu. Helga var hvít sem nár, þegar hún gekk út úr kirkjunni á eftir kistunni; þegar hún kom inn aftur, var hún orðin jöfn í andliti. Haf- golan hafði jafnað blóðið. Þagar gengið var úr kirkjunni, gekk hún einsömul út að Ieiðinu aftur og horfði á það litla stund. Það var eitthvað biturt í svipnum, en þó um leið svo s°rgarsárt og saknaðarfult. Varirnar bærðust, eins og hún væri að tauta eitthvað með sjálfri ser. Svo beygði hún sig niður, hagræddi nokkrum smáhnausum, sem henni þóttu fara úla, brá krossmarki yfir leiðið, og reis svo npp aftur. Svo vatt hún við höfðinn, svo að skúfurinn hennar skauzt aftur yfir öxlina og gekk heim. Eg var á vaðbergi og varð á vegi hennar hér um bil miðja vega milli kirkju og bæjar. Rar gekk eg til hennar og heilsaði henni. Hún tók kveðju minni og starði á mig; angun voru döpur, og kaldir herpingsdrættir ofan með munnvikjunum. Eg sá hún þekti mig ekki og sagði henni því nafn mitt og gat þess að við hefðum kynst fyrir sunnan fyrir nokkrum árum. »Æ, það er rétt — það var ekki von eg þekti yður, þér hafið breyzt svo mikið,« svaraði hún og brosti við; »gerið þér svo vel og kom- ið þér inn.« »Já, eg þakka yður fyrir, en mig langar til að ná tali af yður áður en þér farið, ef eg mætti vona, að þér leyfðuð það.« »Já, velkomið — en eg getþað ekki strax, eg þarf að snúast við öðru.« Og svo gengum við bæði heim hlaðið. Hún gekk svo inn í bæ en eg gekk til stofu. Þar var kaffi á borðum og brennivínsflaska; mér var boðið sæti, og þáði eg það. «Það mun eiga að bjóða upp ruslið eftir hann á föstudaginn,« sagði prestur og beindi máli sína til Þorbjarnar, »er það nokkuð sem nemur?« «Ænei-nei; það er ofurlítið rusl af fötum, reiðtygjagarmar, tvær kistur, kúfort, skápur og skrifpúlt og rækalsmikið af bókarusli. Og svo er rúmið hans, allra bezta rúm —« «Rað á ekki að bjóða það upp,« sagði Helga — hún var nýkomin inn í stofuna, og farin að skenkja gestunum kaffið. «Nú, nú, hvað ætli eigi að verða um það?« sagði Þorbjörn, «það er þó það eina, sem of- urlítil eign var í.« »Það verður líklega eitthvað um það eins og annað í erfðabréfinu hans. Það var sent með það til sýslumannsins, og annað bréf til, rétt eftir að hann lagðist,» svaraði Helga. »Veit nokkur, hvað í því bréfi stendur?« spurði prestur. »Nei, hann hefir víst látið fullgera það, þegar hann fór vestur fyrir hálsana í vor, því að hann var töluvert lengur í þeirri ferð en hann var vanur að vera,« svaraði ÞorbjÖrn.

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.