Nýjar kvöldvökur


Nýjar kvöldvökur - 01.02.1911, Qupperneq 4

Nýjar kvöldvökur - 01.02.1911, Qupperneq 4
28 NÝJAR KVÖLDVÖKUR »Á hann þar nokkurt skyldfólk, eða hvern- ig ætli það sé með hana, þessa Önnu á Foss- um, sem hann var alt af að finna núna seinni árin?« »Það veit held eg enginn almennilega neitt um það; hann tók upp á þessu strax eftir að hún var komin að Fossum nú fyrir einum átta árum.« »Var aldrei grafizt neitt eftir því hjá hon- um?« «Rað var ekki til neins, — hann gaf aldrei neitt út á það fremur en annað, sem hann var spurður um hagi hans.« »Nei, hann varaldrei mannblendinn, karlinn.« »Nei, hann.trúði aldrei neinum fyrir neinu, og svo hefir hann víst dáið hér útaf, að hann hefir víst engum manni sagt- neitt til muna um æfi sína þessi 14 ár, sem hann var hjá mér. Eg ætlaði einusinni að veiða upp úr honum æfisögu hans, og reyndi til að fylla hann einn sumardag fyrsta, en það var það sama. Hann drakk ekki meira en svo, að hann rétt lifnaði, og þegar eg fór að fara betur i kringum þetta sem eg ætlaði mér, þá sagði hann bara. »»Rað er strikað yfir það fyrir löngu og kemur eng- um við nema mér;«« með það stóð hann upp fór inn í hús sitt, og sást ekki það sem eftir var af deginum.* »Skyldi hann ekki hafa átt peninga?« «Pað held eg sjálfsagt. Reyndar gaf hann með sér 120 krónur á ári, og það í peningum en meira var ekki að hugsa til að fá, og hefði þó enginn verið ofhaldinn af því að fá hálft annað með honum, svo var mikil fyrirhöfn fyr- ir honum í mörgu, hestalán og ferðalög og sitt hvað annað. En það má hann eiga, að skil- víslega borgaði hann þetta meðlag.« «En hann hefir víst haft töluvert meiri tek- jur en það?» »Já hann átti svo margar jarðir einhverstað- ar fyrir norðan, svo að að hann fekk mestu firn af afgjöldum; miklu meira en þessu nam. Og það hefir hann sjálfsagt lagt fyrir. Reynd- ar eyddi hann nokkru í tóbak og bækur, en það va ekj nærri því sem því na m.« «Ætli Hega dóttir yðar viti ekkert um það — talaði hann ekki helzt við hana?« "Jú, hún var átta vetra, þegar hann kom- og hændi hana að sér, og Iét hana stjana við sig strax og hún gat það, og alla tíð var hann henni góður, þó enginn annar fengi annað en ónot úr honum. En hvað hann kann að hafa sagt henni, veit eg ekki, en eg býst við það hafi verið lítið. Að minsta kosti segist hún ekkert vita — hann hafi aldrei sagt sér neitt.« «Hann sá um sig, karlinn, það var víst, og ekki eyddi hann í óþarfann um fram það sem hann gat. Eg hefi enda heyrt að hann hafi hér fyrri lánað peninga með okurrentum." »Já, honum kom víst betur að fá rentur af peningum sínum, ef hann fékst til að lána nokkud, sem sjaldan skeði. Einusinni lánaði hann mér hundrað krónur um átta vikna tíma eða svo, og vildi hafa krónu í rentu, og gerði eg það af því að mér lá á peningunum rétt í svipinn, og vann það til, þó með afarkostum væri.« »En hvað gat honum gengið til að vera að safna þessu, ekki voru börnin til að erfa, og jafnsnauður er hann nú eins og aðrir í gröfinni, karlgreyið.« «Já en hann hafði þó altaf svarið til, ef slíkt bar á góma: »Ef eg misti nú alveg heilsuna, og þyrfti að gefa með mér krónu á dag eða kannske meira, þá verður líklega ekki of mikið til.« »Altjend voru það þó jarðirnar.« »Pað var nú eins og að koma við hjartað í honum að nefna þær á nafn. Það leit helzt út fyrir, að hann ætti þær ekki, því að það var ekki vð nefna að þær mættu skerðast; en hvernig á því stóð, fékk enginn að vita.« «Skrifaði hann þá engum áður en hann dó?» »Hann skrifaði sýslumanninum eitthvað og eg held helzt að Helga mín hafi gert það fyr- ir hann — að minstu kosti var hennar hönd utan á bréfinu. En hún þóttist ekkert vita um það, og bara liafa skrifað utan á það fy r ir hann.« »Og hver fór með það til sýslumanns?«

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.