Nýjar kvöldvökur


Nýjar kvöldvökur - 01.02.1911, Qupperneq 5

Nýjar kvöldvökur - 01.02.1911, Qupperneq 5
ÚR BLÖÐUM JÓNS HALTA 29 »Eg fór með það og annað bréf til sýslu- mannsins, daginn sama, sem hann skrifaði, um leið og eg fór í kaupstaðinn.« ^Reynduð þér þá ekki að komast fyrir það hjá sýslumanni, hvað væri í bréfinu?« «Eg talaði ögn í kringum það, en hann gaf ekkert út á það,- »Skelfing á'þetta alt að vera leyndardóms- fult.« »Rað liggur við það. Hann bað mig bara Iáta sig vita sem allra fyrst, ef hann dæi, hve- nær ætti að jarða hann, því að hann hefði á- kveðið það, að láta skrifa upp reitur sínar hér daginn eftir jarðarför, og setja það svo á ax- jón næsta dag, og það verður á föstudaginn. Reyndar trújeg hann hafi skrifsð upp sjálfur hjá sér í vor, og sent það til sýslumanns, svo það er þýðingallítið að gera það aftur.« «Ætlar sýslumaður að bjóða upp sjálfur?« «Já.« »Gat hann ekki látið yður gera það, úr því ekki var um meira að gera en þetta?« »Karl hafði heimtað að sýslumaður gerði það — og.það, að engin handfjallaði reitur sínar nema Helga dóttir mín.» »Svo hún á að vísa fram og segja til.» «Já, ég skifti mér ekkért af því — bara skrifa upp það sem mér er sýnt og sagt til.« «Já, það er rétt — en ætl’ hann hafi ait- af verið eins viltur í trúarbrögðunum eins og hann var um árið, þegar eg talaði við hann?« «Eg hefi aldrei spurt hann að því — en Helga veit það líklega; en ekl<i ímynda eg mér að hann hafi batnað við aldurinn.* »Það er sjaldan vant að vera, þegar það er orðið rótgróið.» »Eg ræð það af því, að eg spurði hann að því einusinni, meðan hann lá, hvort hann vildi ekki að eg sendi til prestsins og biðja hann að þjónusta hann.« «Og hvernig tók hann í það?« »Hann svo sem þagði við, en sagði svo að þið hefðuð aldrei átt samleið, og svo mundi vera enn, svo það mundi ekki vera til mikils. Það væri bezt að sleppa því.« sRað var ekki við öðru að búast af hon- um.« »Og nei, því alt af var skapið það sama fram í dauðann.« »Já það er annars sorglegt, þegar menn misfarast svona, bæði líkamlega og andlega, því að það eru einatt beztu mannsefnin,« sagði prestur seinlega, horfði út í stofuþilið og stundi við; svona menn gætu oft leitt meira ilt af sér, en manni getur dottið í hug.« Helga hafði hlustað steinþegjandi á þessa samræðu; en eftir því sem lengra leið, sá eg að smáleiftrum fór að bregða fyrir í augum hennar. Loksins gat hún ekki orða bundizt við seinustu orð prestsins, en tók til máls: »Svo sem hvað skyldi Jón gamli leiða ilt af sér, eg held helzt að —« »Nei, júmfrú góð,« tók prestur óðara fram í, »það er langt frá mér að vilja lagða Jón með neinu slíku — en það er yður þó líklega kunnugt, ekki síður en hverjum öðrum, að hann var viltur meira en minna í trúnni.« »Eg vissi vel til þess, að hann feldi sig ekki við alt, sem stendur í kverinu, en alt fyr- ir það hefi eg ekki orðið var við neinn rugl- ing hjá honum fyrir það í trúnni; það væri meira að segja betur, að allir væru nú eins vel trúaðir eins og hann var, og gæti tekið dauða sínum með eins óblandaðri von eins og hann gerði.« «Hann las samt trúarvillubækur og hélt upp á þær.» »Ef engir ætti að lesa annað en það, sem hann veit fyrirfram að hann á að trúa — þá væri líklega öllum óhætt.« »Nei, verið þér nú hæg, jómfrú góð — við skulum nú ekki taka þetta svona geyst — en hann var víst gefinn fyrir að tala um trú- armál á sinn hátt við hvern sem vera vildi, og það getur orðið hættulegt fyrir fáfróða.» - Hann átti víst ekki velferð nokkurs manns á samvizku sinni. En eg er nú of fáfróð til þess að ætla mér að fara út í orðakast út af slíku efni; en ef hann hefði lifað nú og ver- ið hérna, þá hefði hann líklega ekki orðlð

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.