Nýjar kvöldvökur - 01.02.1911, Side 8

Nýjar kvöldvökur - 01.02.1911, Side 8
32 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. FORLAGAGLETN I. (Eftir H. Vild.) [Framh.] Fyrir sólaruppkomu næsta morgun lagði grasafræðingurinn af stað með fylgdarmanni sínum. Honum hafði snúist hugur með það að reka hann frá sér, því sína gömlu rósemi og ótortrygni hafði hann fundið aftur um morg- uninn. Svertinginn var hinn sakleysislegasti, og hann duldi það ágætlega, hafi hann vitað nokkuð um það, sem þeirra fór á milli kvö'd- ið áður, húsbónda hans og Múlattanum. Til þess að komast hjá því að rekast aftur á Múlattann, komst hann að þeirri niðurstöðu, að hyggilegast mundi vera að fara hið skjót- asta brott úr því landi, þar sem lögin væru ónýtt pappírsgagn, og komast undir lagavernd Bandaríkjanna. Hann beið því ekki boðanna og hraðaði ferð sinni norður eftir og varð því hughægra, sem hann nálgaðist meir landamærin. Fögnuð- ur svertingjans var og auðsær yfir því að vera kominn á leið til heimkynna sinna í Banda- ríkjunum, og Rjóðverjinn bað hann í hugan- um fyrirgefningar á því að hafa tortrygt hann um kvöldið á veitingahúsinu. Rað voru liðnir þrír dagar frá kvöldinu góða, þegar Rjóðverjanum hafði lent saman við Múlattann, og doktorinn var nú kominn norður fyrir landamærin; þá var það um kvöld, að hann hafði sezt að í skugga undir breið- um trjárunna og var þar niðursokkinn í að skoða plöntur þær, sem hann hafði safnað um daginn og lágu þar umhverfis hann. Alt í einu heyrir hann hvin í lofti upp yfir sér, og á sömu stundu finnur hann snöru renna um háls sér. Hann hafði þotið á fætur, en var jafnskjótt kipt aftur á bak með kastvaðnum, sem kastað hefði verið yfir hann og rann nú að hálsi houum, hann heyrði hrópað á spönsku: «Drepið hann ekki,« og svo misti hann meðvitundina. Þegar hann raknaði við aftur, fann hann að hann var bundinn á höndum og fótum. Búið var að taka kastvaðinn af hálsi honum og verið var að troða upp í hann ginkefli. Hann sá nokkra svertingja í kringum sig og tóku tveir þeirra hann eins og trédrumd og fleygðu honum upp á axlir sér og héldu svo af stað með hann inn í skóginn. Alllanga leið halda svertingjarnir áfram með þessa byrði sína, og var skógurinn sumstaðar þéttur og rifu greinarnar stundum fangann í andlitið. Loks sá hann bjarma bera fyrir aug- un, og sá að komið var fram á skóglausa sléttu, þar sem að eldar brunnu í kringum tjöld nokkur, og var slæðingur af mönnum kringum eldana. Regar nær dró, sá hann að þetta voru alt svertingjar og Múlattar. Pegar sást frá tjöldunum til sveitarinnar er fjutti fangann, varð þar alt í uppnámi. Ressi óþjóðalýður kom æpandi og hlaupandi til að slást í förina með þeim er komu með fang- ann; heyrðust þar hin ámátlegustu læti. Hunda- gelt, barnagrátur, kvennaóp blandaðist satnan við fagnaðarlæti svertingjanna. Regar kom heimundir eitt tjaldið, heyrði Walter hrópað með röddu, sem hann kann- aðist við: »Hafið þið hann?«. »Já herraj« var svarað, og í sömu svipan var fanganum varpað til jarðar hjá stóru báli, svo nálægt, að hitinn varð þegar óþolandi, og hann reyndi að velta sér fjær. Tryllingslegur hlátur heyrðist kringum hann og hann sá nokkra dökka fætur á lofti, auðsjáanlega í því skyni að sparka honum nær bálinu. En þá heyrði fanginn aftur þessa lágu, skerandi rödd, sem hann hafði áður heyrt, og þá stóðu allir hreyf- ingarlausir. Hann leit upp og sá þá hinn risa- vaxna Melazzo standa yfir sér og stara á sig þessum grimmu, köldu augum. «Petró,» hrópaði Múlattinn, og ungur Ind-

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.