Nýjar kvöldvökur - 01.02.1911, Page 24

Nýjar kvöldvökur - 01.02.1911, Page 24
48 NYJAR kvöldvökur. getur ekki. En maðurinn er frægur rithöfund- ur og sögunni hefir verið snúið á ýms mál þar á meðal á dönsku, og hælt á hvert reipi og rúað sem nýju neti. En við það verður nú að sitja. Mig minnir enda að henni væri hælt í ísiensku tímariti — og má þá vægast svo segja að hákallinn sé ekki hörundsár, og ekki heldur Islendingar um sóma sinn. Nú er nýlega útkomið annað rit á dönsku eftir danska skáldkonu, sem heitir Thit Jensen: Sagn og Syner (Sagnir og sýnir, Kh. 1909 153 bl.). I kveri þessu eru 10 sögur, allar meira og minna bygðar á þjóðtrú og þjóð- sögnum vorum, og munu Iesendur kannast við sumar þeirra að meira eða minna leyti. Sögur þessar eru sagðar í hinum strang- asta nýtízkustíl að formi og frágangi, einna líkast listastíl þeim, sem hinir yngri höfundar vorir eru nú sem óðast að stæla og taka til láns frá Dönum og Norðmönnum og láta prenta í tímaritum voruin. En þó að íslenzkan þoli hann illa, sem von er til — henni fer aldrei vel að ganga í dönskum lánskjólum, faldurinn og peisufötin fara henni bezt — þá verður ekki annað sagt en hann fari vel í höndum Thit Jenseu, því að hún fer listilega með efn- ið í þeim stíl. En eitthvað verður það hjákát- legt að sjá íslenzkar álfa- og draugasögur sagð- ar í dönskum nýtízkustíl. Rjóðsögur vorar eru ætíð sagðar í sögustíl, engu ofaukið og ekkert látið til vanta, en gerir söguna Ijósa og glöggva um leið og hún líður fram með þungum straumi til enda. En hjá dönsku jómfrúnni verður þetta alt að orðamálverki, svo að hún þarf heila blaðsíðu undir það, sem við segjum í heilli línu. Retta er nú ærið nóg til þess að gera sögurnar ólystugar fyrir okkur Islendinga. En hún hefir ekki ætlað að rita fyrir okkur, heldur fyrir Dani og þær útlendu jajóðir, sem ekki kunna orðið við annað en þenna ritstíl. Rað er því ekki hægt að finna að þessu við hana. Þjóðtrúna sjálfa hefir hún gert sitt til að reyna að skilja og það hefir henni tekist furðanlega. Það er ekki meiri misskilningur á því en búast mátti við. Svipir og vofur birt- ast þar alveg á íslenzku að kalla má, og margt hefir hún séð og skilið nokkurnveginn rétt í íslenskum háttum. Hún hefir líka verið hér á landi heilt ár og gert sitt til þess að skilja þjóðina. En sumt er samt í kveriru, sem tæp- lega nær tiokkurri átt. Fyrsta sagan heitir Sigriöur og fer fram í og við Reykjavík jarðskjálftaárið. Eg get ekki séð að neitt sé íslenzkt í þeirri sögu nema nafnið og staðurinn; hitt er all danskt —nema því að eins að Reykjavikurkvenfólkið sé alt orðið ram útlenzkt í húð og hár, en því trúi eg ekki. Draugurinn á biskupsseirinu fer fram í Skálholtskirkju. Smiður er þar við ljóstýru að smíðum út í kirkju, enda þótt kirkjur séu sjaldan hafðar fyrir smíðaverkstæði hér á landi. En svo fer Jón biskup Arason að ganga aftur þar í kirkjunni og flæmir smiðinn út. Jóti biskup Arason er nú ekki jarðaður þar, þó hún segi svo, en svo liggur henni orð til hans að hann hafi orðið »þrjóskur .hundur drottins sem hafi flækst hauslaits út úr heiminum af því að hann var hálshöggvinn fyrir uppniaup á móti Dönunt» (bls. 44), og svo hefir hann engan frið í gröfinni fyrir þetta. Ojæja, nátt- úrlega. Á sömu bls. eru allir biskuparnir grafnir innan kirkju, og hlerar yfir legsteinun- um í kirkjugólfittu, og mun það líkl. vera svo; en á bls. 103 eru allir biskupalegsteinarnir í molum og brotum á víð og dreif út um all- an kirkjugarðinn, þegar sagan gerist, og er svo raðað inn í kirkjuna seinna. I sögunni »Móðurhugur,« deyr kona af barns- förum, og er borin fram að kvöldi til. Mað- ur hennar er ekki heima — hann er á fiski- skipi, en er einmitt að koma á höfnina þetta kvöld urn vorið, og heldur undireins heim og kemur seint heim, og fréttir þá hvernig komið er. Hann fer nú samt að sofa, en vcrður ekki svefnsamt, því að þetta sama kvöld höfðu 13 af mönnum hans druknað þar á höfninni (all- ir kannast við þá sögu); og svo var konumiss- irinn. Alt í einu sér hann konu sína standa í dyrunum, stara á sig og ar.dvarpa við. Hon- um verður svo felmt við, að hann missir all- að þrótt og líður svo löng stund; en svo fór hann um morguninn — fyrri þorði hann það ekki — út í hlöðu til þess að gæta að, livort konan væri dauð. En er hann kemur þangað, sér hann að hún hefir vaknað af dái um nótt- ina, alið barnið og tekið það í fang sér, og svo ekki megnað meira, en dáið. Og hún var þar gaddfrosin á líkbörunum. Fyr má nú vera vorkuldi á Íslandi en þetta! Ef til vill kann eg að snara einhverri af sögum hennar seinna og setja hana í Kvv. til þess að gefa íslendingum á að líta, hvernig þjóðsögunum þeirra og þjóðtrúnni fer danski kjóllinn. J. J. Prergsmiðja Björns Jónssonar 191).

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.