Nýjar kvöldvökur - 01.01.1914, Side 7

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1914, Side 7
SMARAGDA. 5 væri, þó var hann of stórlátur til þess að spyrja, hvaða erindi Armeninn ætti við sig. Furstinn virtist endilega vilja tala meira, en Hugh horfði á hann svo kuldalega og ókunn- uglega, að hinum þótti ekki árennilegt að brjóta upp á samtali aftur. »Eg er yður til óþæginda,« sagði Armen- inn, eins og til þess að gera síðustu tilraun til að spjalla hinn upp. Englendingnrinn starði út í bláinn. Armeninn kvaddi rnjðg kurteislega eins og Frakki, Hugh kinkaði lítið eitt kolli, svo gáfu þeir sig hver að sínu, Hugh fór að athuga ferðafólkið nánar, og Ieist ver og ver á það. Það var kominn miðdegisverðartími, og lauk- lyktin óx mikið, ásamt lykt af ýmsu öðru, því að farþegarnir voru að búa út mat sinn. Bæði á efra og neðra þilfarinu þyrptust þeir í smá- hópa innan uin kistur sínar og körfur, sátu saman nokkrir f stað og suðu í kötlum sínum. Stór hópur safnaðist utan um sauð, sem var slátrað, fleginn og höggvinn í spað, á öðrum stað var maður nokkur, að hálfu leyti klæddur norðurálfu-búningi, að draga á eftir sér hafur, seni hann líklega hafði skotið upp i Kríteyjar- fjöllum, og var að búast undir að steikja hann á teini. Hugh fór Iíka að kenna sultar og bað þw' um mat í skipseldhúsinu, en fékk svo slæman mat, kryddaðan hvítlauk, að hann fór að iðrast þess að hafa farið með »Heru«, og einsetti sér að fara af í Aþenuborg og fara þaðan á austurríska skipinu, eins og hann hafði ®tlað í fyrstu. Pegar hann kom út á þilfarið aftur og fór að svæla vindling til þess að kæfa 'auksterkjuna, þá kom Armeninn aftur til hans let sem hann hefði aldrei orðið afturreka, og sagði brosandi: »Herra de Lucy, við erum einu mennirnir á skipinu.« Hugh var eitthvað mildari í skapi en áður, °g þó að hann fyrirliti þessa nærgöngulu fram- komu furstans, þá tók hann undir við hann. *Er mikið af steingeitum ' á Krít? spurði hann og benti á dökkgula gæruna og stór, hjúg hornin, sem lágu á þiljunum þar rétt hjá þeim. »C —o,« svaraði Arm^ninn, »á flestum eyj- unum hérna og í fjöllunum í Litlu-Asíu er fjöldi af steingeitum. Það er þó ekki auðvelt að skjóta þær. Maðurinn þarna, Aristides Len- os, er duglegur veiðimaður. — Má eg bjóða yður kaffibolla?« Hugh sá eftir hvað hann hafði verið við- mótsþýður, því að þess vegna lét hann nú leið- ast lengra en hann ætlaðist til, en hann vildi ekki móðga hinn og tók því boðinu. Armeninn klappaði saman höndunum, og ungur piltur í bláum stakki með gríska stromp- húfu kom í hendingskasti. Armeninn sagði eitt- hvað við hann og spurði svo Hugh, hvort hann vildi ekki koma í tafl., Hugh samsinti því, og svo settust þeir báðir við lítið borð og fóru að tefla. Bláklæddi pilturinn, sem auð- sjáanlega var þjónn Armenans, kom svo með tvo litla koparskaftpotta, helti úr þeim heitu, svörtu kaffinu í litla postulínsbolla, sem stóðu f silfurumgerð. Kaffið var ágætt. Hugh hélt sjálfur, að hann væri góður taflmaður, — auð- vitað ekki svo góður, að blöðin færu að geta hans sem afburðamanns í þeirri grein, — en að hann kynni þó að leika vel. Honum varð því ekkert sérlega vel við, þegar Armeninn gerði slæglegt bragð og kom honum í klípu; hann reyndi að bjarga við t'aflinu eftir mætti, en varð mát eftir skamma stund. *• Viljið þér ná yður niðri á mér aftur?« spurði Saoul fursti. »Nei, þakka yður fyrir,« sagði Hugh og stóð upp; »viljið þér drekka eitt glas?« bætti hann við kurteislega. »Með mestu ánægju.« Hugh sótti flösku af skosku whisky ofan í kistu sína og nokkra Havanna-vindla, og þjónn Armenans sá fyrir sódavatni. Þannig sátu þeir svo og drukku, reyktu og spjölluðu, án þess að viðræðan snerist að því, sem þeiV helst vildu vita báðir, nefnilega hversvegna þeir hitt- ust þarna á skipinu. Pað varð ekki fyr en kl. 6 e. h. daginn eftir, að þetta seinskreiða skip kom á höfnina í Piræus. Pað var orðið dægri á eftir áætlun;

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.