Nýjar kvöldvökur - 01.01.1914, Page 10

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1914, Page 10
8 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. VINNUMAÐURINN. Eftir Þorkel Purrafrost.. I. Lambasetan. Pað var komið fram í októbermánuð, eg var á 12. árinu og var látinn sitja lömb frá réttunum. Mér var farið að verða það létt verk og vanalegt, því eg hafði gert það áður í þrjú haust. Nú þótti mér það skemtilegt, því eg bar ekki ótta fyrir að eg myndi tapa af þeim, en kveið fyrir því þegar eg byrjaði. Nú var eg orðinn elskur að hjörðinni og hlakkaði til þeg- ar síðari göngur og almennir samanrekstrar bættu í hana. Eg hafði ánægju af að taka eftir séreinkennum lambanna, og að geta þekt hvort frá öðru, og að sjá hvaða móður hvert þeirra mundi eiga, þetta var auðvitað tilgáta, en mun þó hafa verið rétt um mörg, því eg þekti all- ar ærnar á heimilinu með nöfnum, og greiddi það fyrir, þar sem ættareinkennin héldust án stórra breytinga. Rennan dag var hægur vindblær af suðri, sólin sendi heita geisla niður í milli skýja aðra stundina, en hina þokuðu þau sér fyrir hana, eins og til að hlífa laufinu við að skrælna meira en orðið var, en það var nú að falla í dyngjur af viðargreinunum. Landslag þarna var að mestu leyti ein flatneskja, aðeins smá holt stóðu upp úr á stöku stað, en hvar sem litið var, uxu allskonar viðartegundir mest grasa, og sléttu víða af mjög stóru og hrika- legu þýfi, en hvorki sást mýri né valllendis- blettur. Skógviðarrunnar sáust einn og einn með löngu millibiii, sem útverðir allra annara viðarteinunga og gerðu útsýnina tilkomumikla og einkennilega. Eg settist undir einn þessara runna, og lömbin voru spök í kringum mig, sá ekki nema á bakið á þeim sumum upp úr hrísinu í skorningunum og tíndu þar língresi og vafn- ingsjurtir, sem fléttuðu sig langt upp fyrir við- arræturnar, því þó þarna væri hrjóstrugt að sjá, voru kindur hagspakar og afnotamiklar, og tók ekki fyrir jörð á veturna nema í aftökum. Eg hafð vanalega með mér Grettissögu til að lesa í, þegar eg þurfti ekki að vera á gangi við lömbin. Ekki var annað til að grípa í af því tægi og leiddist mér það að geta ekki skift um, en ekki var til neins að fást um það. Eg var farinn að kunna utan að eins mikið í henni og kverinu mínu, og var eg þó að nafninu búinn með það. Alt í einu hrökk eg við, upp úr lestrinum, — þar sem Grettir var að þæfa við skessuna niður að Goðafossi — að heilsað var upp á mig með nafni; þekti eg óðara, hver það var, sem heilsaði; það var nágranni minn, sem hét Finnur, og var alment nefndur Finnur vinnu- maður, og átti heima á næsta bæ, sem Ás hét. Mér þótti mjög vænt um að sjá hann, því hann var sá eini kunningi, sem eg átti þá utan heim- ilis, og höfðum við iðulega fundizt og skemt okkur saman, þegar báðir voru við fé. Ekki gat það valdið vinfengi okkar, að við værum á líku aldursskeiði; þvf eg var sem áður er sagt á barnsaldri, en hann var aldraður. Allir sem kyntust honum, þektu hann að góðu og öllum var vel við hann. Hann hafði verið vinnutnaður síðan hann komst á þann aldur, og lengstaf í sveitinni, sem hann nú átti heima f, þó eitthvað annarsstaðar. 01lum húsbænd- um þótti vænst um hann af hjúum sínum, og vildu ekki af honum sjá. Verkamikill hverja stundina var hann ekki fram yfir aðra, en þeg- ar til lengdar lék, vanst honum í mesta lagi. Ástundunin var stöðug og hollustan við hús- bændur sína, viljakrafturinn jafn, geðið sífelt rólegt og viðmótið þýðlegt. Sjaldan talaði hann mikið, en gott að taka hann tali, og vildi til að hann var ræðinn, og þá mjög glaður, og brá fyrir hæðniskeiin. Ekki var hann til menta settur hið minsta, en þó fróður um margt, og hafði aflað sér þess af sjálfsdáðum, því tilsögn

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.