Nýjar kvöldvökur - 01.01.1914, Qupperneq 11

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1914, Qupperneq 11
VINNUMAÐURINN. 9 var þá ekki tíð meðal almúgans. Nokkuð var hann skrifandi, og einkum ritaði hann fljóta- skrift allsæmilega. Margir sögðust hafa séð hann rita á blöð iðulega, en enginn vissi hvað það var sem þar stóð, en héldu að hann mundi gevma alt þessháttar. Fjármaður var hann með afbrigðum, og við þau störf hvar sem hann var. Aldrei hafði hann gifst, eða verið kendur við kvenfólk í þeim sökum, þó kom það fyrir, ef minst var á Finn vinnumann, sem ógiftan og barnlausan, að rosknum piparmeyjum brá við, horfcu í gaupnir sér og sögðu síðan: »Hon- um var nógu bumbult af því þá einusinni sem fiann jós út hjarta sínu, hérna á árunum. Að því býr hann síðan, manntetrið.« — Þegar þessi góði kunningi minn hafði heils- að mér, settist hann hjá mér, og fórum við að spjalla um ýmislegt smávegis, svo sem um sPekt í fénu, göngur, heimtur og fjárrekstra roilli bæja, hvað haustið ætlaði að verða gott, hve veðrið væri indælt í dag o. s. frv. »Eg á við þig erindi núna, Keli minn,« sagði hann. »Eg er viss um að hvorki þú né nokkur 'annar gæti getið rétt til um, hvað það er.« »Eg ætla þá ekki að reyna til þess. Mér sýnist þú líka svo áhyggjufullur á svipinn, og þó get eg ekki skilið, að þú eigir erindi um það til mín, sem þú hefur áhyggjur af.« »Jú, svo er einmitt,« sagði hann. Eins og þú veist, lærði eg að draga til stafs, þegar eg var ungur, og hef í hjáverkum mínum haldið Því við, og ritað hjá mér helstu viðburði, sem komið hafa fyrir á lífsleiðinni, sérstaklega það s^m snert hefir mig að einhverju leyti. Retta óagbókarrusl mitt — eða hvað eg á að kalla Það, ætla eg að gefa þér. Eg hefi veitt því eftirtekt, að þú ert hneigður til að lesa og ert Vel orðinn læs, bæði á prent og skrift, en hef- Ur fátt til að lesa, og þó þetta sé ófullkomið sem eg hefi samsett, getur það verið til þess, að þú þekkir betur en er vinnumanninn, góð- ^unningjann gamla, og gleymir honum síður, Þó hann verði kominn á þann stað, þar sem hinir umkomulitlu gleymast af flestum, þegar hvorki auður né frægð — og eg vil bæta við glæpir, halda minningunni á lofti.« »Ætlarðu burtu úr nágrenninu, og viltu þá samt ekki eiga blöðin þín, eða veiztu fyrir víst að þú deyir bráðlega?« reyndi eg að spyrja, og held eg að grátstafur hafi heyrst í röddinni. »Láttu þettaekki á þig fá, góði,« sagðihann. »Ef eg lifi til næsta vors, ætla eg að flytja suður á land og setjast þar að. Rað er líka hugboð mitt, að eg eigi ekki mörg ár eftir ólifuð. Eg ér farinn að slakna á taugum, og vita hvað það er að vinna og Iýjast. Eg hefi þekt, hve sárar tilfinningar og vonslit slíta manni, hve sárt er að offra kærleiksfórn á alt- ari táls og pretta, en sleppum þessu, eg er orðinn of bituryrtur og málóður í áheyrn þinni, vinur, sem ert svo ungur og geymir svo óspilt og saklaust barnshjarta, sem eg kysi að geyma, sjálfur, og eiga fremur allri auðlegð, og vona með guðs hjálp að menjar séu þó eftir. Eg á systurson, sem Grímur heitir, sem býr ekki langt frá Reykjavik, duglegur og efnaður vel, og eg þekki hann að góðum og tryggum frænda, því hann var uppalinn hér í grend við mig. Hann hefir boðið mér að koma til sín á næsta vori, og dvelia hjá sér það sem eftir er, hvort sem eg vinni nokkuð eða ekki, og hve lengi sem eg þurfi á að halda, og þetta tilboð ætla eg að þiggja. Auðvitað legg eg með mér það litla sem eg á, en það er ekki mikið, eg hefi ekki verið kaupharður, og held- ur eigi samheldinn; það er mesta eignin mín 300 dalir í sparisjóði í Reykjavík. Dagbókina skaltu fá fyrir vorið, en fyr ekki, það getur skeð, að eg lagfæri eitthvað í hénni í vetur, þó óvíst sé, því sjónin er heldur að bila. Sumt í henni er blakt, en þó hægt að lesa það, og eg treysti því, að þú verðir svo pennafær með tímanum, að þú getir umskrifað eitthvað af því, sem lakast er í henni. Skyldi eg snögglega deyja á þessum vetri, gengur þú að blöðunum sem þinni eign, og ætla eg svo ekki að tefja lengur hjá þér í þetta sinn, vinur minn, og vertu nú sæll.« Svo gekk hann liðugt frá mér og flýtti sér

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.