Nýjar kvöldvökur - 01.01.1914, Page 14

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1914, Page 14
12 NYJAR KVÖLDVÖKUR. skapmikil.í þó ekki bæri oft á skapbrigðum. Flestir töldu hana vitrustu konu í þeirri sveit, þó allar væru jafnar í því að vera óupplýstar og mentunarlausar, nema ef sjálfsmentun í stöku stað var finnanieg á aumingja alþýðufólkinu. Rað sem eg átti að læra til bókar, hafði hún umsjón á, sem ekki var áskilið að væri meira, en að verða læs, og svo að kunna ut- anbókar hið Ianga 8-kapítula kver, og geta eitthvað sagt úr biblíunni, þegar fyrir prestinn kom. Fóstra mín hvatti mig til að reyna að draga til stafs, þó örðugt gengi, því enginn á heimilinu kunni að skrifa, nema hún sjálf, og ekki meira en svo, að það átti að heita lesandi, og hafði ekki reynt til þess, fyr en hún var fullorðin. Tilraun hennar varð þó til þess, að eg lærði að klóra þetta litla, þó lítið væri um fyrirmynd, því skrifað mál sá eg varla; það barst ekki inn á heimilið, utan viðskiftareikn- ingur frá kaupmanninum, skrifaður á dönsku fyrir það mesta, og ekki barnameðfæri. Fóstri minn sá um að eg lærði utanbæjarverk, þó sér- staklega að gæta sauðfjár, því hann sjálfur var góður fjármaður og tamt að segja fyrir um það. Það var alt minna sem hann lét mig starfa að öðru. Mér virtist hann ekki tíma því sökum eftirlætis á mér, og ótta fyrir því að eg myndi mæta ofmikilli áreynslu. Gæða-atlotin voru þau sömu við mig þegar eg var orðinn stálpaður og jafnvel fullorðinn, eins og meðan eg var barn. Jörð þá, er fósturforeldrar mínir bjuggu á, átti auðkýfingur með spentar járngreipar í fjarlægri sveit, sem ekki vildi selja hana þó beðið væri og hvað sem í boði var. Þau áttu því enga jarðeign, en allstórt bú og afnota- gott og voru talin laglega efnuð. — Gamall klerkur þjónaði þarna í sveitinni, sem Geir hét. Bjó hann á Miklaholti og mess- aði þar, og á tveimur annexíukirkjum að auki. Var önnur þeirra utarlega í dalnum að vestan- verðu, en hin utan til í Skógahverfi. Hann hafði á fyrri árum verið mikilmenni í líkamlegum efnum og röggsamur í kirkjum. Nú þótt hann væri tæplega fær um að gegna prestsstörfum í víðlendu kalli, hafði það engin áhrif á söfn- uðinn, og kirkjan var oftast troðfull hvern messudag; hylli hans hjá söfnuðinum stóð á gömlum merg, þó kennimanns-skilyrðum fækk- aði. Hann hafði oftast verið skyldurækinn og þó í meira lagi drykkfeldur, en heilsa og þrek ekki bilað, svo hvert embættisverk var drifið af, þó áferðin væri ekki hárfín á þeim öllum; það gerði ekki mikið til, því eftirtekt og smekk- ur tilheyrenda var þar á móti veikburða, og vaninn sléttaði af öllum misfellum. Ræðufram- burður prestsins var afarhár og hreimmikill, og óspart sagði hann til syndanna. Ekki vantaði það. Áhrifamestu kaflarnir voru út af gamla sáttmálanum, og þrumuðu í eyrum tilheyrenda með ógnanda krafti, svo ekkert hjarta var í þeirri stálumgerð, að það bifaðist ekki, og flest- um »skaut skelk í bringu« af að heyra um syndaflóð, höggorma, landplágur, afdrif Sódóma og að verða saltstólpi m. m., en niðurlagið kom oftast með þá hressingu, að þessi söfn- uður væri einn af þeim drottins útvöldu, og fyr mundu höfin klofna, en hann kæmist ekki klaklaust til fyrirheitna landsius, og þá urðu náttúrlega allir vissir um sig, og þó einhver hefði blundað undir ræðunni, og dreymt eitt- hvað voðalegt, var sá hinn sami ugglaus, um sig, því hann sá alt þetta ljóta var draumur og annað ekki. Undantekningalaust vöktu allir þegar sungið var í kirkjunni, því presturinn var afbragðs raddmaður og söng ætíð með söngmönnunum, svo yfirgnæfði hverja rödd, enda jöfnuðu sóknabörnin tóni og söng hans við raddir englanna á himnum. Ekki spilti það heldur samkomulagi prests og safnaðar, að hann gengi hart eftir tekjum sínum, því hann nefndi þær aldrei, öðruvísi en hann sendi árlega sanngjarna reikninga, fylgdi þeim ekki eftir með kröfum og lét hvern sjálfráðan. Skírnartolla reiknaði hann aldrei, og fékk heldur ekki öðruvísi, en á þann hátt, að látið var í 3 pela flösku brennivín, af hverjum sem barn eignaðist við skírnina, og þessi regla gilti yfir alla hans embættistíð. Rá var hluttekn- ing Bakkusar ekki svo tilfinnanlega dýrkeypt,

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.