Nýjar kvöldvökur


Nýjar kvöldvökur - 01.06.1915, Qupperneq 2

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1915, Qupperneq 2
122 NYJAR KVÖLDVÖKUR. skyldir nokkurntíma heyra nokkurn þeirra kann- ast viö það auðmjúklega, að þeim hefði fatast, lesari góður, þá ætla eg að biðja þig að segja mér það, því að þá skal eg gefa hverjum sem við er staddur, vel í staupinu, og það ekki af verri endanum, heldur af því bezta, sem erað fá. Vitmennirnir héldu þvi fast við þá sann- færingu sína, eða að minsta kosti létu svo, að það væri hægur vandi að breyta Parísargötu- strák í bónda. Og einn þessara háu herra skrifaði höfuðþykka bók, sem kostaði hálfa sjöttu krónu, um uppeldisstofnunina á Háslétt- unni, og sannaði þar með sífeldum svigagrein- um og ótal yfirlitstöflum ennþá einusinni, að siðgæðisviðreisn spiltra barna og gulrófnarækt væri eitt og hið sama. Bókin var reyndar lítið lesin, eg held eg þori að segja, að það hafi varla verið skorið upp úr henni. En höfund- inum var eigi að síður hælt á hvert reipi fyrir lærdóm hans og skarpleik og fekk hann einhvern kross í viðurkenningarskyni. Aðferðinni var því ekkert breytt, en sum- staðar varð þó að gera ýmsar tilhliðranir. Sterk- bygðustu strákarnir, eða réttara sagt þeir sem ekki voru allra blóðlausastir, héldu áfram sveita- vinnu sinni á drepandi hásléttunni, löðrandi í óhreinindum og veðurbarðir af vetrarstormum; en hnuda hinum voru útbúin verkstæði, þar sem þeim voru kend hin og önnur handverk, þar mátti heyra hamarslög skella á steðja, hefl- ana ryðja við og skósmiði lemja á Ieðri. Hugmyndin var góð. »Við setjurn þig inn, óhræsið þitt, og þar færðu að dúsa öll æsku- árin; en þegar þú sleppur út héðan, hefur þú verkfær í höndum, sem þú kant að nota. Ef þú vilt vinna og lifa sómasamlegu lífi, þá get- ur þú það.« En því er nú miður, að góð hugmynd er einkisvirði, ef hún er ekki færð út í mannlíf- inu með þolgæði og ósérplægni. Parísardreng- irnir litiu voru fingrafimir, og stjórnin, sem er vön að borga hlutina þrefalt meira en þeir eru verð r, getur oft orðið hlægilega nánasarleg þegar sízt skyldi, fór óðara að hugsa sér að græða á vinnu fanganna. Hún útvegaði sér pantanir af burstasmíði og barnagullum. Börn- in lærðu því ekki nein handverk, sem þeim gátu að gagni komið síðar, heldur bjuggu til tóman hégóma. Alt var gert að lélegasta gróða- fyrirtæki. Páverandi yfirmaður stofnunarinnar var mis- fara stjórnmálamaður, sem einhverntíma á stú- dentsárum sínum hafði drukkið nokkur ölglös með fáeinum ráðgjöfum, sem seinna urðu. Peir höfðu svo seinna látið hann fá þetta starf, til þess að hann gæti fengið sem mest laun fyrir sem minsta vinnu að hægt var. En hann var ekki svo lítið brot af þorpara, manntetrið. Hann tók mútur, bæði af þeim, sem pöntuðu vörur frá stofnuninni, og þeim sem létu þær af hendi. Börnin fengu versta fæði — hver skifti sér af því? — og það var svo mikið fé haft af ríkinu, að það fór að aka sér og malda í móinn. Og svo varð hneyksli út úr öllu saman. Málið var ransakað og kom til umræðu á þinginu. Sumir herrar, sem færir þóttust í flestan sjó, fóru af hendi þingsins til stofnunarinnar og settu upp mesta spekings- og þykkjusvip. En yfirmaðurinn hafði fengið aðvörun í tíma. Hann lagði fram reikn- inga, hreina eins og tærasta lindarvatn, og fór svo með þá ofan í eldhús og lét þá smakka súpuna, sem var ágæt þann daginn, og voru þeir þá ærið mannalegir. Svo komu þessir hátt- virtu herrar aftur til Parísar, og voru þá mjúk- ir og hrærðir í skapi, því að þeir höfðu feng- ið »fínasta» morgunverð áður en þeir fóru. Þeir friðuðu ráðgjafann, svo að hann lýsi upp- eldisstofnun Hásléttunnar svo glæsilega í þing- ræðu, að það minti á hirðingjarómana, og þing- mennirnir, sem áttu að fara heim í kjördæmi sfn daginn eftir, þurftu að hugsa um, hvernig þeir ættu að ljúgá kjósendur sína fulla, svo að ekki bæri á, samþyktu altsaman. En formaður- inn var ekki fæddur í gær, og þóttist ómaklega grunaður, fór og heimsótti nokkra af hinum gömlu svallbræðrum sínum, og lét þá veita sér annað embætti, auðvitað vellaunað, á Aust- ur-Indlandi, þar sem enginn gat gefið honum öfundarauga. Par dó hann nú annars fam árum seinna; háu tekjurnar unnu á honum.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.