Nýjar kvöldvökur - 01.06.1915, Síða 15

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1915, Síða 15
TUMI LITLI 135 >Parna getið þið nú séð hvort eg sagði ekki satt! Við Huck eigum sinn helminginn hvor!« Gestirnir störðu steini lostnir á gullið og mæltu ekki orð frá vörum. En brátt drifu að Tuma hvaðanæfa áskoranir um frekari upplýs- ingar. Hann hóf svo sögu sína og hún varð ærið löng, en allir hlýddu þó á hana með eft- irtekt og tóku aðeins fram í með stuttum spurn- ingum. Þegar Tumi hafði lokið sögu sinni sagði Valliser gamli: »Eg hélt að eg mundi geta vakið dálitla undrun meðal gestanna, en nú sé eg að eg er algjörlega yfirbugaður!* Peningarnir voru nú taldir; voru þeir að upphæð í kring um 50000 krónur, og slíka uppiiæð hafði enginn þeirra er viðstaddur var, séð í einni hrúgu, þó margir þeirra ættu langt um meira virði í fasteignum. XXXI. Eins og gefur að skilja. vakti hinní óvænti auður þeirra félaga mikla eftirtekt í þessu fá- menna og afskekta þorpi. Menn töluðu nú ekki um annað og hugsuðu ekki um annað. Slík upphæð í tómu gulli þótti ganga ýkjum næst. Hvert einasta hús í kringum Pétursborg, sem nokkrar sögur fóru af að reymt væri í, og þau voru ekki svo fá, var svo að segja efnafræðis- lega ransakað frá mæni og niður í kjallara, fjöl fyrir fjöl og stein fyrir stein, ef ske kynni, að þar fyndust huldir fjársjóðir. Pað var gosin upp regluleg fjárgraftrarsýki, er við lá að rugla mundi heila veslings borgaranna, og það voru ekki einimgis drengirnir eða börnin, sem feng- ust við slíkar ransóknir, heldur einnig fullorð- nir, og að allra dómi, skynsamir menn. Hvar sem þeir komu, Huck og Tumi, var dáðst að þeim og þeim óskað til hamingju. Hvað sem þeir gjörðu, var álitið eitthvað svo aðdáanlegt; þeir voru alveg hættir að geta gerl nokkuð hversdagslegt eða lítilvægt. Menn fóru að líta yfir æfiferil þeirra og fundu þá skjótt ýmislegt, er bent gat þeim á dæmafáa hæfileika; var nú líka dagblað þorpsins farið að flytja þættiyúr æfisögu þeirra. Frú Douglas hafði komið peningum Hucks á vöxtu með 6°/o ársrentu og hið sama gjörði Thatcher dómari við peninga Tuma, Pessir »fínu herrar,«— svo voru þeir félagar nú tíðast kallaðir — höfðu allálitlegar árstekjur, hérumbil 4 krónur á dag árið út. Pað var næstum eins miklar tekjur eins og þær sem presturinn hafði; en hann fekk aldrei svo mikið. blessaður, þó honum væri lofað því. Dómarinn hafði alveg hóflaust álit á Tuma. Hann sagði það svo oft að enginn svona algengur drengur á Tuma aldri, hefði getað bjargað sér og dóttur hans út úr hellinum. Og þegar Bekka sagði föður sínum frá því, er Tumi tók á sig refsingu þá er henni bar í skólanum, þá komst herra That- cher innilega við. Og þegar Bekka bað hann að taka ekki hart á þeirri haugalýgi, sem Tumi án umhugsunar hafði spunnið upp, til að velta sökinni og höggunum yfir á sitt eigið bak, staðhæfði dómarinn, að sú lýgi hefði verið bæði göfug og drenglyndisleg; kvað hann sögu þessa bera vott um svo óvenjulega mikið veg- lyndi hjá jafnungum dreng, að hún ætti fullan rétt á að glitra á spjöldum sögunnar samhliða sögunni um hann Washington og öxina hans. Bekku litlu fanst líka að íaðir sinn hefði aldrei verið jafn tignarlegur, eins og þegar hann mælti þessi orð! Enda líka þaut hún strax á stað til Tuma og sagði honum frá öllu saman. Dómarinn bar þá von i brjósti, að hann ætti eftir að sjá Tuma verða frægan lögfræðing eða hraustan herforingja eða hvorttveggja. Hann ætlaði sér, er tími væri til kominn, að sjá um, að drengurinn kæmist á herlistaháskólann og þaðan á lögfræðingaskóla; gat hann þá, að því búnu, valið hvora leiðina sem hann vildi, eða kanske báðar. Auðæfi Hucks ásamt veru hans hjá frú Douglas, komu honum brátt í félagsskap heldra fólksins, eða réttara sagt, endastakk honum nauðugum þangað, og þjáningar þær, er hann leið við þetta, voru næstum meiri en hann gat undir risið. Perna frúarinnar hélt honuin hrein- um og vel til fara, þvoði hann, greiddi og burstaði daglega og lét hann á hverju kvöldi,

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.