Nýjar kvöldvökur - 01.06.1915, Side 19

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1915, Side 19
HATTPRÚÐA STULKAN. 139 þangað skip og flýtur þá aftur heim með margskonar dýrindis menjagripi. »Hvar er Po!Iy?« endurtók Fanny. »Veit ekki,* svaraði Tumi stuttur í spuna, því nú var söguhetjan í þann veginn að kom- ast undan krókódíl sem var voðaskepna. Maud kom nú Iíka inn með þrjár Parísar- brúður, sem allar þurftu að fá viðgerð á há- tíðarfötum sínum. Hún spurði líka eftir Polly með ákefð. »Ef til vill hjá ömmu,« hreytti Tumi út úr sér, bað hann svo systur sínar að lofa sér að vera í friði. Pær svöruðu honum ónotum en því veitti hann enga eftirtekt, því þá hefði söguhetjan stungið sér í sjóinn og var í þann veginn koma lagi á krókódílinn með voðaleg- um hníf, sem hún kafaði með milli tannanna. Pær systur fóru síðan upp til ömmu sinn- ar og fundu hana sitjandi frammi fyrir opnum skáp með ýmsum fornum munum. Polly sat þar á lágum stól og hlustaði á frásagnir gömlu konunnar, sem voru í sambandi við munina í skápnum. Hún hafði tekið fram útsaumaða skó með háum hælum, sýndi Polly þá og tók þannig til máls: »Já, góða mín! Petta eru skórnir sem hún var á, þegar Joe mágur kom inn til hennar, þar sem hún sat við vinnu sína, og sagði: »Dolly! við verðum að gifta okkur nú þegar.« »Eins og þér sýnist, kæri,« sagði Dolly móð- ursystir, og svo fór hún ofan í dagstofuna, þar sem presturinn beið eftir þeim. Hún hafði ekki einusinni fyrir því að hafa fataskifti, en lét víga sig í því sem hún stóð, með saumnála- púðan við belti sér og fingurbjörgina á fingr- inum. Petta var líka ófriðarárið 1872 og Joe varð að fara til bersins þegar eftir vígsluna. Hann tók nálapúða brúður sinnar með sér og eignaðist eg hann síðar og hann er hérna í skápnum. Joe sagði að hann hefði frelsað líf sitt, þvi kúlan hafði sig eigi í gegnum hann,« og gamla frúin tók fram og sýndi Polly gaml- an upplitaðan nálapúða með holu í, sem Polly skoðaði undrunarfull. »Pví hefir þú aldrei sagt mér þessa sögu, amma?« spurði Fanny. »Pú hefir aldrei beðið mig að segja þér sögur, og því hefi eg ekki verið að flíka mín- um gömlu sögum,« svaraði amman stillilega. »Segðu okkur þá nokkrar núna, og meg- um við ekki skoða eitthvað af hinum gömlu munum í skápnum,* sögðu þær systur og horfðu inn í skápinn með mikilli forvitni. »Ef Polly er ánægja að því, að þið séuð hér, megið þið það. Hún er gestur minn, og eg vil eigi að henni leiðist, því mér er sönn ánægja að heimsóknum hennar,« sagði frúin með gamaldags kurteisi. »Já, já, mér þykir vænt um að þær verði hér og hlýði á frásagnir yðar með mér. Eg hefi oft sagt þeim að hér uppi væri svo skemti- legt og beðið þær að koma hingað með mér, en þeim mun hafa fundist hér vera svo kyr- látt og haldið því, að þær mundu eigi una sér. Fáið ykkur nú sæti stúlkur, og lofið ömmu ykkar að segja frá. Eg ætla að taka fram þá muni sem mér virðast eftirtektaverðir og biðja svo ömmu að segja okkur eitthvað þeim við- víkjandi,« sagði Polly. Hún vissi, að gömlu frúnni var það hin mesta ánægja að tala um gamlar endurminningar og hafa unglinga hjá sér til að hlusta á frásagnir hennar. »Hér eru þrjú hólf, sem langt er sfðan að hafa verið opnaðar,* sagði gamla konan. »Par eru nokkrir munir, og ef þið viljið vita eitt- hvað um þá, skal eg segja ykkur það og sögu þá, sem við þá er tengd.« Stúlkurnar opnuðu sitt hólfið hver og Maud fann þegar skrítilegan leðurpung sem saumað var í upphafs F mað bláu garni. Hún bað ömmu sína að segja sér eitthvað um til hvers þetta ílát hefði verið haft. Gamla frúin sagði henni skemtilega sögu frá bernskuárum sínum, þegar henni og Nelly systir hennar hafði um tíma verið komið fyrir hjá föðursystur þeirra, sem var mjög hörð við þær. Einusinni þegar hún var ekki heima og vinnukonan hafði lagt sig út af, fundu þær upp á því að klifra upp 18*

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.