Nýjar kvöldvökur


Nýjar kvöldvökur - 01.06.1915, Qupperneq 20

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1915, Qupperneq 20
140 NYJAR KVÖLDVÖKUR. í eplatréð og hrista niður epli, sem þær svo fóru að sjóða. Matreiðslan misheppnaðist þó algerlega og þegar vinnukonan kallaði ofantil þeirra og spurði, hvað þær væru nú að hafast að, varð henni svo bilt við að hún misti nið- ur blikkausuna með sjóðandi eplaleginum og skaðbrendi sig á fótunum. Henni var svo kom- ið í rúmið og föðursystir hennar var sótt. Hún varð ekkert vond við hana, en annaðist hana með mestu nákvæmni og blíðu meðan bruna- sárin voru að gróa. Þá gaf hún henni þennan leðurpung og saumaði F-ið hennar á hann. Hengdi hann svo fyrir ofan rúmið hennar og laumaði við og við í hann brjóstsykri, sýróps, kökum og öðru góðgæti, og var hún þó ekk- ert fyrir, frekar en eg er nú, að venja börn á sætindi. Sagan varð Iítið lengri, en þegar henni var lokið hafði Fanny tekið upp úr sínu hólfi sam- anbundinn bréfabunka. Þau voru rituð á þykk- an og grófan pappír og flest lökkuð eða hafði verið lokað með oflátu. Sýndi þetta að bréfin höfðu verið rituð áður en farið var að hafa tilbúin umslög utan unr bréf. Fanny bað ömmu sína að segja sér eitthvað um þessi bréf. Frúin virti fyrir sér bréfin og fór svo að hlæja svo hjartanlega að stúlkurnar þóttust viss- ar um að bréfin mundu hafa vakið hjá henni einhverjar gamansamar endurminningar, sem skemtilegt væri að heyra um. *Nú skuluð þið fá að heyra dálítið skrítið. Eg hefi eigi hugsað um það í fjörutíu ár. Veslings kæra reikula Sally Pomroy. Hún er nú satht orðin langamma núna,« sagði gamla frúin þegar hún hafði lesið eitt bréfið, og þurk- aði döggina af gleraugunum sínum. »Já, segðu okkur eitthvað um hana. Vafa- laust verður það eitthvað skemtilegt fyrst þú getur hlegið svona dátt að endurminningunum um hana,« sögðu þær Polly og Fanny. »Já, það var skrítilegt, mér þykir vænt um, að eg mundi eftir þessu, því hér er sagan sem er ágæt fyrir ungar stúlkur.« »Það eru nú mörg ár síðan,« sagði gamla frúin, »og kennararnir voru þá miklu strangari en þeir eru nú á dögum. í skólanum hjámng- frú Cattons var hin mesta reglusemi í öllum greinum. Við máttum ekki hafa Ijós í svefn- loftum okkar eftir kl. 9 á kvöldin, eigi fara einar út á kvöldin, og það varætlasttil að við værum sönn fyrirmynd að allri háttprýði og siðsemi frá morgni til kvölds. Það var ekkert undarlegt, að tíu ungar stúlkur, sem fengið höfðu fjör og galsa í ríkum mæli, þætti það þreytandi að fara eftir öllum þeim reglum, sem þarna voru settar, og þær reyndu að bæta sér þetta upp með ýmiskonum glettum, þegar þær voru einar. Ungfrú Catton og bróðir hennar höfðust vanalegast við í innra herbergi, þegar kenslu- tímanum var lokið og búið var að senda læri- meyjarnar til herbergja sinna í rúmið. Herra Jön var mjög heyrnarsljór en ungfrúin aftur í meira lagi nærsýn. Þessi vangefni þeirra kom okkur ungu stúlkunum oft vel, þegar við vor- um í einhverjum galsa, en einu sinni treystum við þó of mikið á hæfileikaskort systkinanna, er með fram stafaði af því, að herra Jón hafði skarpa sjón þótt hann heyrði illa, en systir hans næma heyrn þótt nærsýn væri. Einusinni þegar við höfðum haldið okkur vel í skefjum heila viku, varð okkar bælda og innilukta kátína á einhvern hátt að brjótast út. Við urðum að skemta okkur á einn eða annan hátt og við fórum að brjóta heilari um hvernig því yrði bezt viðkomið, og komumst að þeirri niðurstöðu að haga þessu þannig: Við skyldum láta Sally síga út um glugg- ann, hún var lítil og létt en órög og mesti galgopi. Við skutum svo sarnan dálítilli upp- hæð sem hún átti að kaupa fyrir hnetur, brjóst- sykur, sætar kökur, epli, aldini og fleira góð- gæti, svo og kertisstúf, svo við gætum þó brugð- ið upp ljósi, þegar Betsey að vanda tæki frá okkur Ijósið klukkan 9. Áformið var að hengja ábreiðu fyrir gluggan á insta loftherberginu. Setja vörð við stigann, kveykja svo á kertinu og skemta sér svo sem bezt með masi og sætindaáti. Kvöldið, sem þetta skyldi framfara, þóttust

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.