Nýjar kvöldvökur


Nýjar kvöldvökur - 01.06.1915, Qupperneq 22

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1915, Qupperneq 22
142 NYJAR KVÖLDVÖKUR. »Eg gerði ekki viðvart, þetta hlýtur að hafa verið rotta,« sagði hún. »Farið þið nú og flýtið ykkur að Ijúka ykkur af, eg er orðin leið á því að hanga hér.« Eg fór inn aftur með þessi góðu tíðindi, og nú var Ijósið enn kveikt og við tókum all- ar til óspiltra málanna. Við vorum ekki lengi að gera kökunni skil og því næst var byrjað á hnetunum og möndlunum, og var áform okkar að bíta þær sundur með tönnunum Svo slysalega tókst þá til að bréfpokinn sem hnet- urnar voru í hvolfdist í höndunum á einni okk- ar og hneturnar hrundu eins og hagladrífa of- an á bert gólfið og framleiddi þetta pikkandi hljóð. »Par fórstu með það,« hvíslaði Sally^ en María tók til að krafsa eins og rotta fram á ganginum. Umgangur heyrðist niðri því skóla- stýran var ekkert heyrnarsljó, og hún var snar- ari í snúningum enn Betsey. Pað var því með naumindum að María komst undan henni frá stiganum. Við hinar björguðum okkur í rúmið hver sem bezt gat. Fyrst kom skólastýran inn til mín og vorum við þar tvær í rúmi. Við láum hreyfingarlausar en rauðar mjög í andliti, en það sá hún auðvitað ekki. Hún var fremur fáklædd og skringileg og stúlkan sem hjá mér var í þann veginn að skella uppúr, en eg læknaði hana með því að klýpa hana svo fast sem eg gat. »Hvaða skellir voru hér uppi?« spurði skólastýran. Við svöruðum auðvitað engu en önduðum þungt og lá við að hrjóta. í næsta herbergi spurði hún hins sama. Þar var eins ástatt, engu var svarað öðru en hrotunum í stúlkunum. Því næst fór hún inn til Sallyar og fór okkur þá ekki að verða um sel, því þar vissum við að yfirheyrslan murtdi verða ná- kvæmust. Við risum því upp og hlustuðum með öndina í hálsinum. »Sally, eg skipa þér að segja mér hvað hér er um að vera,« sagði kenslukonan. En Sally gerði ekki annað en andvarpa í svefninum og talaði upp úr honum mæðulega’: »Ó, mamma taktu mig heim aftur, eg er að deyja úr hungri hjá þessari kerlingu.« »Hvað gengur að barninu hefir hún hita- sótt,« sagði þessi aldraða skólastýra, sem ekki sá hnetudréifina um gólfið. »Hér er svo leiðinlegt, eg vil fara heim,« kveinaði Sally og sló um sig handleggjunum og lét illa í svefni. »Að öllu má ofmikið gera, segir máltækið og sannaðist það á Sally litlu. Því þegar hún fór að veifa höndunum upp í loftið kom rauði nálapúðinn, sem hún hafði á brjóstinu í Ijós- mál, og þótt skólastýran sæi illa, rak hún þó augun í þetta einkennilega skraut, og um leið í vænt epli sem lá á koddanum við vangann á Sally. Var þá ekki frekar um sakir spurt, en stýra svifti ábreiðunni ofan af stúlkunni, sem lá þarna með stígvélin á fótunum, og þau eigi sem þokkalegust eftir ferðina um kvöldið. Ald- ini, sætabrauð og brjóstsykur komu þar einnig í Ijós undir ábreiðunni. Sömuleiðis hafði kertis- stúfnum verið stungið þar inn undir og hafði hann brent gat á rekkjuvoðina áður en á hon- um hafði slokknað. Stýra æpti upp yfir sig af undrun, og við það óp vaknaði Sally og fór þegar að skellihlægja. Við hinar gátum ekki heldur varist hlátri og tókum svikalaust undir, og hljómaði því hlátur okkar um alt loftið í rúma mínútu. Ekki er að vita, hvenær við hefðum hætt, ef hneta, sem Sally hafði upp í sér, hefði ekki hrokkið ofan í hverkar henni og verið nærri búin að kæfa hana, svo við urð- um allar hræddar.« »Hvað var svo gert við þetta mál og hvaða hegningu fenguð þið?« spurði Fanny sem far- in var að hlægja að sögu ömmu sinnar. »Leifarnar frá gildinu fengu svínaungarnir, en við fengum eigi annáð en vatn og brauð í þrjá daga.« »Tókuð þið ykkur fram við þetta?« »Og ekki verulega. Við gerðum okkur margt fleira til gamans þetta ár á bak við skólastýr- una, og þótt eg væri þá ekki barnanna bezt, og geti stundum hlégið að þessu, finn eg þó

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.