Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Blaðsíða 14

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Blaðsíða 14
KENNIMAÐUR N. Kv. 150 Dálítill tími leið, en ekkert kom í ljós, sem varpað gat ljósi yfir þetta leiðinda- mál. Ástandið innanveggja á Breiðavaði var eins og spákúla, sem varlega verður að snerta við, svo að hún ekki springi. Frú Vigdís hafði hlífðarlaust látið það í ljós við mann sinn, að það hefði verið miður heppileg aðferð að deila á vesalings Sigríði fyrir það, hvernig komið var. Ásamt Ólöfu hafði hún talað við Sigríði, og ásamt annarri vitneskju efaðist hvor- ug þeirra um, að hún hefði rétt fyrir sér. Séra Bjarni hafði einnig alloft talað við Hákon, sem alltaf hélt fast við sinn fyrri framburð og tókst meira að segja í viðbót að vefja presti svo um fingur sinn, að séra Bjarni fékk æ sterkari tilhneigingu til þess að ætla, að hann væri saklaus af þessu öllu saman, en stúlkan svo djúpt fallin í dýki spillingarinnar, að henni væri ekki við hjálpandi. Séra Bjarni varð æ reiðari út í þetta mál, sem virtist alltaf flóknara eftir því sem lengur leið. Helzt hefði hann viljað láta það afskiptalaust, en nú orðið fannst honum hann ekki geta það. Ef til vill fyr- ir þá sök, hve kona hans varði málstað Sigríðar einarðlega, stóð hann frekar Há- konar megin. Hver svo sem sannleikurinn var, hafði stúlkan unnið til þess, að henni væri sagt til syndanna vífilengjalaust. Ásakanir prests höfðu fengið mikið á Sigríði, sem var einföld og um leið van- stilt í skapi. Nú gekk hún um þungfær og hnípin, með rauð, þrútin augu og stöðug- ar grátviprur á andlitinu. Það var að renna upp fyrir henni, að öll hennar fórn væri unnin fyrir gýg, en hún hafði litið svo á, að allt væri réttlætanlegt, til þess að koma í veg fyrir, að Hákon brigði heiti við hana og gerðist með því eiðrofi. Og eftir að hann flutti úr vistinni og gerði sig ósýnilegan í öðrum landshluta, varð hún tæplega með sjálfri sér. Það var seint um kvöld viku af vetri. Frú Vigdís gekk út til þess að taka inn þvott, sem hún átti úti á snúru. Jörð var alauð, tungl á lofti, en skýjafar nokkurt, svo að stundum dimmdi skyndilega, en al- bjart var á milli. Það var raunar komið fram yfir venjulegan háttatíma, en hún hafði beðið með að hátta, þar til þvottur- inn væri orðinn þurr. Hún stóð með fangið fullt af þvotti, þegar hún heyrði skellt hurð. Hún leit í kringum sig, en sá engan og gaf því svo ekki frekari gaum. Hún var að því komin að ganga í bæinn, þegar hún heyrði eitt- hvað og fór að leggja hlustirnar við. Það var áreiðanlega hratt fótatak á frosinni jörð, fótatak, sem fjarlægðist niður túnið. Hún rýndi í áttina, en gat ekki séð neitt fyrst í stað. En allt í einu kom tunglið fram undan skýi. Gerðist þá svo bjart, að vel mátti greina mann í nokkurri fjarlægð. Fóta- takið var nú orðið svo fjarlægt, að það var tæplega heyranlegt lengur. En nú þegar birti, kom hún auga á manneskju neðst á túninu, sem stefndi hröðum skref- um í áttina til árinnar, Þó að birtan væri ekki vel greinileg, þekkti hún fljótlega, hver þar var á ferð. Það var ekki nokkur vafi á, að þarna var Sigríður á ferð og stefndi til árinnar. Frú Vigdís kólnaði öll upp við þessa sýn. Hvaða erindi gat stúlkan átt út svona seint og á leið til árinnar, sem niðaði þungt fyrir neðan túnið. Þvotturinn féll úr höndum hennar nið- ur á jörðina. Sigríður gat ekki átt nema eitt erindi til árinnar. Hún varð að koma í veg fyrir þetta brjálaða örþrifaráð ves- alings stúlkunnar. Hún brá við, hljóp nið- ur túnið og kallaði á hlaupunum: — Sigga, Sigga mín! Ekkert svar. Hún hlaut þó að hafa heyrt, því að fjar- lægðin var ekki svo mikil. í silfurhvítri

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.