Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Blaðsíða 15

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Blaðsíða 15
^í. Kv. KENNIMAÐUR 157 birtu tunglsgeislanna sá hún hana nokk- urn spöl á undan sér. Hún mundi auð- veldlega ná henni. Hún gat ekki hlaupið til lengdar, stúlkan, komin að falli. En allt í einu dró ský fyrir tunglið og- um leið dimmdi. Viðbrigðin voru svo mikil, að hún sá ekki handa skil fyrst í stað, og þegar hún hélt áfram að hlaupa, datt hún endilöng um þúfu. Hún reis á fætur, rýndi og hleraði út í myrkrið, en sá ekkert eða heyrði. Svo kallaði hún nokkrum sinnum, en án þess að fá svar. Svo hélt hún áfram að hlaupa í áttina til árinnar. Hún varð lafmóð, og hjartað barðist svo í brjósti hennar, að henm fannst sem það mundi springa á hverju augnabliki. Hún náði árbakkanum eftir tíma, sem henni fannst heil eilífð, en hún varð ekki vör við neitt. Hún kallaði, hlustaði og rýndi út í myrkrið, en árang- urslaust. Á hverju augnabliki bjóst hún við að heyra neyðaróp drukknandi mann- eskju. Kæfandi angist lagðist yfir hana. Gat það verið, að allt væri um garð geng- ið og hún hefði komið of seint? En allt í einu birti á ný, svo að nú gat hún séð hið næsta umhverfi nokkurn veg- inn greinilega. Þá sá hún Sigríði. Hún var komin fram á bakkann dálítinn spöl fyrir neðan hana. — Sigga! Sigga! hrópaði hún og hljóp •allt hvað hún orkaði í áttina til hennar. En annaðhvort var, að Sigríður heyrði ekki eða vildi ekki heyra, því að hún herti ferðina og hljóp beint fram af bakkanum í ána, rétt í sömu svifum og frú Vigdís náði þangað. Sigríður hafði ekki gefið sér tóm til neinna athugana. Þarna var bakkinn lág- ur og áin grunn við landið. Hún var samt nægilega djúp til þess að inna af hendi það hlutverk, sem hún átti að vinna, ef frú Vigdís hefði ekki gripið inn í rás við- burðanna. Hún sá móta fyrir dökkleitri Jiústu úti í straumnum, og án nokkurra umsvifa stökk hún út í á eftir Sigríði og náði tökum á þessari dökku þústu, sem var að þokast út í strenginn. Hún beygði sig niður í ískalt vatnið, náði utan um Sigríði og hálf-dró hana aftur upp á bakkann. Á þessari stundu fannst frú Vigdísi hún hafa yfirnáttúrlegt afl. Þegar upp á bakkann kom, fór hún að líta eftir því, hvort Sigríður mundi enn- þá vera lifandi. í fangi hennar hafði hún verið þung og slyttuleg eins og dauður hlutur. Já, hún var lifandi og hafði meira að segja meðvitund. Þetta hafði heldur ekki skipt neinum togum. Hún hreyfði sig til og hóstaði upp vatni, sem hún hafði dr ukkið. Frú Vigdís reyndi að hjálpa henni eftir megni og jafnframt fór hún að hugsa ráð sitt. Það var ekki allt búið, þó að hún væri búin að koma stúlkunni á land. Það var mikið vafamál, hvort hún kæmi henni heim hjálparlaust, og hún þorði ekki að skilja við hana á þessum stað og í þessu ástandi. En heim varð Sigríður að komast sem allra fyrst. Þó að veðrið væri gott, var dálítill kuldi í loftinu, og stúlkan svona á sig komin. — Treystirðu þér til þess að standa á fætur, Sigga mín? spurði hún blíðlega. Ekkert svar. Sigríður hafði setzt upp og starði sljóu augnaráði fram undan sér. Frú Vigdís endurtók spurninguna. En Sigríður svaraði ekki ennþá. í stað- inn beygði hún út af og fór að gráta þess- um þunga, vonleysislega gráti, sem ekki færir neina svölun. Svo stundi hún upp: — Því lofaðirðu mér ekki að deyja? Mér er ómögulegt að lifa. Ég er svo synd- ug manneskja. Það er enginn góður við mig. Ég vil deyja. — Þú átt að lifa Sigga mín. Ekki ein- ungis sjálfrar þín vegna, heldur vegna barnsins þíns, sem þú átt í vændum. — En hann sagði, presturinn, að ég væri óguðleg manneskja. Og svo er hann-

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.