Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Qupperneq 26

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Qupperneq 26
168 SAGA MÖÐRUDALS Á EFRA-FJALLI N. Kv. Brunahvammi í Vopnafirði. Þar dóu tvö börnin, Sigurður og Aðalbjörg, vorið eft- ir, en móðir þeirra og stjúpi fluttust sama ár með Ástríði til Vesturheims. Jón Jónsson (f. 1812) fór rúmlega tví- tugur að aldri, vorið 1833, bústjóri til Gunnlaugs Þorkelssonar á Eiríksstöðum á Jökuldal, er þá um hríð gat ekki sinnt bústjórn sjálfur sökum vanheilsu. Eftir 3 ár (1836) kvæntist Jón Guðrúnu dóttur hans. Voru þau í búi með foreldrum hennar í tvö ár, en hófu þá búskap á móti þeim. Eftir dauða Gunnlaugs bónda (1857) bjuggu þau á jörðinni allri. Jón var þrekmaður, hinn mesti bú- höldur og orðlagður fjármaður. Hann andaðist 23. marz 1860, tæplega 48 ára að aldri. Guðrún bjó á Eiríksstöðum í mörg ár eftir hann. Synir þeirra tveir, Jón og Gunnlaugur, mikilir efnismenn, bjuggu á Eiríksstöðum eftir foreldra sína, en urðu ekki langlífir (Jón dó 1873, en Gunnl. 1888). Dætur Jóns og Guðrúnar voru: Aðal- björg, er átti ísak verzlunarstjóra Jóns- son; Anna, er átti Gísla gullsm. Jónsson á Seyðisfirði; Guðlaug, er átti Jónas skóla- stjóra á Eiðum, Eiríksson; Sigurbjörg og Ragnhildur, er giftust hvorug. Yngri bræðurnir, Sigurður og Metúsal- em, staðfestust á óðali ættar sinnar. Frá uppvaxtarárum, eða fyrstu búskap- arárum þeirra, er svo sagt, að það hafi verið venja þeirra, að fara í eftirleitir á haustum og vetrum inn á öræfi, m. a. í Herðubreiðarlindir, þar sem var hið forna ítak Möðrudalskirkju til ómerkinga. Þess- um eftirleitarsögnum fylgir það, að þeir hafi þá oftar en eitt sinn orðið varir við útilegumenn. Eitt sinn hafi þeir fundið axlabönd úr hrosshári, sem álitið var, að væru af úlilegumanni. í annað sinn hafi þeir komizt í kast við útilegumenn; hafi Sigurður lent í höndum þeirra, en Metú- salem náð honum frá þeim aftur. Er sagt, að þeir hafi þá verið í vaðmálsfötum sterkum, heimaunnum sem líklegt var; hafi föt Metúsalems öll verið táin og tætt^ er þeir komu heim, en föt Sigurðar heil. Ekkert vildu þeir þó um þetta ræða, þeg- ar heim kom. En nokkru síðar, er þetta barst í tal, er sagt, að Sigurði hafi farizt svo orð, að sér hefði verið gagn, að Metú- salem bróðir sinn væri sterkur. Og enn síðar í brúðkaupsveizlu, er Metúsalem var vínteitur, á hann að hafa sagt: „Sterk- ar voru. hendur þær, sem bundu Sigurð bróður minn“. Eftir þessa för er sagt, að þeir bræður hafi þótt taka óeðlilega mik- ið út af kaupstaðarvöru, og eins hafa meiri vöru til innleggs í verzlanir en lík- indi þóttu til. Var álitið, að þeir hefðu haft milligöngu um kaupstaðarviðskipti fyrir útilegumenn. Hefðu þeir ekki nema að nokkru leyti losað sig úr höndum þeirra fyrir harðfylgi sitt, en að hinum þræðinum með því að heita þessari milli- göngu. Lík sögn er um þá Eirík Sigurðs- son á Aðalbóli og Jón Andrésson á Vað- brekku, er uppi voru einum ættlið fyrr en Möðrudalsbræður. Má vera, að þessi sögn hafi flutzt af öðrum á hina á aðra hvora hönd. Má og vera, að hvorttveggja sögnin sé þjóðsagnaskáldskapur einn. Um 1840, eða litlu fyrr, er þess sérstak- lega getið, að þeir bræður færu í eftirleit í Herðubreiðartungur. Fundu þeir þar þá 9 kindur; þar á meðal var ein ær grá, 5 vetra gömul, ómörkuð. Næsta vetur voru jarðbönn, og varð þá að farga ánni, vegna þess að ekki var hægt að kenna henni átið. í einni af eftirlitsferðum þessum fann Sigurður sverð í Grafarlöndum. Úr búi hans gekk það til Stefáns Einarssonar og úr hans búi til Sigurðar Haraldssonar, tengdasonar hans. Hvort sagnir þessar eiga við sannindi að styðjast, er ekki auðið að segja nú, en

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.