Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Side 27

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Side 27
N. Kv. SAGA MÖÐRUDALS Á EFRA-FJALLI 169 skráðar voru þær ekki alllöngu eftir að þeir voru á dögum. Hafa einnig fundizt leifar mannabústaða (1880) í Hvannalind- um, sem ekki er fullvíst, hverjir verið hafa. Á manntali 1840, er Jón faðir þeirra var nýlátinn, eru þeir Sigurður og Metú- salem báðir taldir fyrir búi með móður sinni. Svo hefir verið mikið jafnræði þeirra bræðra og gott samkomulag, að hvorugur hefir verið öðrum það framari, að aðeins annar þeirra teldist fyrirvinna á búinu. Var þó Sigurður þá kvæntur og fjórum árum eldri. Metúsalem Jónsson og Kristbjörg Þórðardóttir. Þeir bræður, Sigurður og Metúsalem, fengu jörðina úr búi foreldra sinna, en hinir bræðurnir, sem burt voru fluttir, lausafé. Reistu þeir bú á sínum helmingi jarðarinnar hvor. Metúsalem bjó þar miklum mun skem- ur; verður því fyrst frá honum sagt. Metúsalem var fæddur árið 1818. Hann kvæntist 20. sept. 1841, Kristbjörgu Þórð- ardóttur frá Kjarna í Eyjafirði (f. 6/11 1818). Þau voru vígð saman af Skinna- staðapresti heima þar í Möðrudal. Munu þau þá hafa hafið búskap næsta vor á móti Sigurði og Ástríði. Svo mikið orð fór af vænleik og at- gjörvi þeirra Kjarnasystra, að efnismenn gjörðust til kvonbæna við þær um langar leiðir, af því orðspori einu saman, að því er sagt er. Það er sagt að þeir hafi orðið samferða í bónorðsförina að Kjarna, Metúsalem og Stefán Gunnarsson frá Hallgilsstöðum á Langanesi, síðar bóndi í Stakkahlíð í Loðmundarfirði, bróðir séra Gunnars á Hallormsstað. Sigfús Sigfússon segir frá bónorðsför þeirra á þessa leið: „Nálega jafnaldri Metúsalems sterka var Stefán Gunnarsson að Hallgilsstöðum, atgjörvismaður, þriggja álna hár og þrek- inn. Þeir Metúsalem voru jafnháir, þó sýndist Metúsalem lægri vegna gildleika og þess, hve vel hann var vaxinn.1) Kunn- ingsskapur var með þeim Stefáni og Metúsalem. Þeir fóru saman í bónorðsför norður að Kjarna í Eyjafirði, að biðja dætra Þórðar bónda Pálssonar, er þar bjó, og fengu sína dóttur hans hvor, Metúsal- em Kristbjargar, en Stefán Þorbjargar. Voru þær hin mestu valkendi". Vel má það vera, að þessi frásögn Sig- fúsar eig' við rök að styðjast, en farið munu þeir þá hafa, a. m. k. Stefán, til að leita samþykkis þeirra Kjarnahjóna, því að hvorug þeirra systra var þá heima á Kjarna. Kristbjörg var á Hálsi í Fnjóska- dal, en Þorbjörg í Árnanesi í Kelduhverfi hjá Árna bróður sínum, en ekki allfjarri því, sem Stefán átti þá heima. Munu þau þá hafa verið orðin kunnug áður, hvað sem verið hef-ir um Metúsalem og Krist- björgu. Hefði Kjarnaferð þeirra átt að vera 1840 eða 1841, því að báðir giftust þeir árið 1841, þó ekki samtímis. Eins og fyrr var sagt, var Kristbjörg næstu árin áður en hún giftist á Hálsi í Fnjóskadal, hjá Sigurði presti Árnasyni og síðari konu hans, Valgerði Magnúsdótt- ur frá Hrafnagili. Nam hún þar kvenleg- ar íþróttir, eftir því sem títt var í þá daga. Höfðu þau Hálshjón á henni mikið dálæti og álit. Til dæmis um skarpleika hennar og færni er það sagt, að síðar (1853—1858), er hún var í Vallanesi hjá Guttormi prófasti Pálssyni, hafi hún ver- ið fljótari en hann að reikna út uppistöðu í mislitan vef; hún reiknaði í huganum, en hann á blaði. Hún var í öllu tilliti vel að sér gjör og reyndist hin mesta búsýslu- kona. Sambúð þeirra Metúsalems og Krist- U Aðrir telja Metúsalem meira en þriggja álna liáan. Kristbjörg, sem var meðalkvenmaður á hæð, gat staðið upprétt í handarkrika hans. 22

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.