Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Síða 34

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1941, Síða 34
N. Kv_ C. Krause: Dætur frumskógarins. Saga frá Mexíko. Guðmundur Frímann þýddi. (Framhald). Dolores horfði með athygli yfir hið skóglausa svæði, sem lá næst haciend- unni. Tunglið skein 1 heiði, svo að bjart var næstum því eins og hádagur væri. Hún átti því auðvelt með að greina hvern einstakan blett á stóru svæði. „Ég þykist á þessari stundu geta með vissu ráðið í huga yðar, Donna Dolores“, sagði Banderas með fagurgala. „Það væri fróðlegt að heyra“, svaraði Dolores með daufu brosi. „í fyrsta lagi aðgættuð þér, hvort faðir yðar væri horfinn úr augsýn, og í öðru lagi hlustuðuð þér eftir hófaadyninum“. „Þér hafið næma athyglisgáfu“, svaraði Donna Dolores, „ég verð að viðurkenna að þér gátuð rétt til“. „Ég er ekki alltaf jafnóskeikull, kæra ungfrú, en það er köllun mín að kynnast yður, fagra Dolores11, svaraði hershöfð- inginn. Donna Dolores leit undrandi á hann. „Hvað meinið þér?“ spurði hún loks. „Að þér séuð fegurst og eftirsóknar- verðust allra þeirra kvenna, sem ég hefi kynnst“. Donna Dolores var vissulega óviðjafn- anlega fögur, svo að ekki var neitt und- arlegt, þótt hún gæti hitað jafnvel hinum kaldrifjaðasta manni um hjartaræturnar. „Hvað heyri ég!“ mælti hún brosandi, „hvenær byrjaði hinn hrausti herforingi og veiðimaður að leggja ástarsnörur sín- ar?“ „Það var daginn þann, er mér varð ljóst, Sennora, að þér væruð fegursta meyja Ameríku“. „Það mun enginn draga í efa riddara- hæfileika yðar, hershöfðingi, en yður fer sannarlega betur að tala um bardaga yðar við dýr og villta menn, en að slá mér gull- hamra“. „Meinið þér það?“ „Vissulega“, svaraði Dolores, „ekkert er mér ógeðfelldara en það, þegar mér er hrósað upp í eyrun. — En, guð minn góð- ur! Hvað var þetta?“ Donna Dolores náfölnaði. „Mér heyrðist ég heyra eitthvert vein utan úr skóginum“, mælti hún svo lágt að varla heyrðist. Don Jaime fölnaði og Banderas var sýnilega órótt. Hann sneri sér undan, föl- ur eins og liðið lík. Þrátt fyrir skapró hans gat hann ekki dulið geðshræringu þá, er hann komst í. Hún var ekki sprott- in af samvizkubiti, heldur stafaði hún af því að hann vissi, að þessi stund var af- drifarík fyrir ráðabrugg hans. Hann jafnaði sig þá fljótlega og sneri. sér við, og mælti með þvinguðu, hálfaf- skræmdu brosi við Dolores: „Það lá við, að ég yrði sjálfur hálf skelfdur vegna geðshræringar yðar, Senn- ora. Þér heyrið ofheyrnir og sjáið aðeins drauga 1 kvöld. Ég hefi ekkert hljóð heyrt og heyri þó mjög vel“. „Hershöfðinginn hefir rétt fyrir sér“, mælti Don Jaime. „Þessi eilífi, óskiljan-

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.