Tjaldbúðin - 01.01.1899, Síða 30
•28-
ins, enda virðist hann að ýmsu leyti vera ol-
boga barn þess.
TÍUNDA KIRKJUÞINGIÐ
var haldið á Mountain í Norður-Dakota í jöním.
1894. Á kirkjuþingi þessu mættu 6 prestar og
erindsrekar frá 14 söfnuðuin.
I sambandi við þetta kirkjuþing má minnast A
málið um inngöngu kirkjufjelagsins í General
Council. Eptir því, sem iengur liefur liðið,
hafa augu manna opnast betur og betur fyrir
þeim sannleika, að “ kirkjufjelaginu hefur
gengi ð hörmulega illa.” Það hefur hrundið frá
sjer eða ekki getað fest hald á “tveimur þriðju
hlutum ” allra Vestur-íslendinga. Til þess
að vinna böt á þessu, liefur þót.t ráðlegt, að
kirkjufjelagið gengi í samband við önnur lút-
ersk kirkjufjelög. Af þessum orsökum hefur
komið fram málið um inngöngu kirkjufjelags-
ins í General Council, sem er stórt lúteiskt
kirkjufjelaga-samband í Vesturheimi. Mál
þetta var tekið fyrir á kirkjuþinginu 1894.
Síðan hefur það verið rætt á kirkjuþingum all-
vandlega. Það eru allar líkur til þess, að
kirkjufjelagið gangi inn í General Council, áður
en langt líður. Það virðist og vera eina ráðið
til þess, að kirkjafjelagið rjetti við og nái til-
gangi sínum.