Bæjarskrá Reykjavíkur - 01.01.1905, Page 78
132
Fólaga skrá og stofnana
viðkynningu fólagsmanna hvers við annan og auka veg og gengi heiðvirðrar
blaðamensku hér á landi«. Fólagsmenn 7 sem stendur. Formaður Björn
Jónsson.
BÓKMENTAFÉLAGIÐ, stofnað 1816 af danska málfrœöingnum mikla
Rasmus Kristjan Rask, með þeim tilgangi, »að styðja og styrkja íslenzka
tungu og bókvísi, og mentun og heiður hinnar íslenzku þjóðar, bæði með
bókum og öðru, eftir því sem efni þess fremst leyfa«. Arstillag 6 kr.
Stjórn þess er tvískift, önnur deildin í Reykjavík, hin í Khöfn. Sjóður þess
er eftir síðasta reikningi rúm 3000 kr. hjá Reykjavíkurdeild og 21000 kr. hjá
Kaupmannahafuardeild. Auk þess á það svo mörgutn tugum þúsunda kr.
skiftir í liandritum og bókaleifum (í Rvík 70,000).
Forseti Reykjavíkurdeildar er Kristján Jónsson yfirdómari, ritari Pálmi
Pálsson adjunkt, fóhirðir Geir T. Zoéga adjunkt, bókavörður Morten Hansen
barnaskólastjóri.
BÓKSALAFÉLAGIÐ í Reykjavík, stofnað 12. jan. 1889, til samvinnu
meðal bóksala landsins og stuðnings þeim atvinnuveg. Meðlimir þess eru:
Björn Jónsson, ritstj. í Reykjavík; David Östlund. prentstniðjueigandi s. st.;
Friðbjörn Steinsson, bóksali á Akureyri; Jón Ólafsson, bóksali í Reykjavík;
Sigfús Eymundsson, bóksali í Reykjavík, form.; Sigurður Kristjánsson, bóksali
í Rvík; Skúli Thoroddsen, ritstj., á Bessastöðum; Þorsteinti Gíslason eand.
phil. í Rvík.
Útsölumenn ’nefir félagið nær 50 innanlands, 2 í Vesturheimi og 1 í
Kaupmannahöfn.
BRUNABÓTAGJALD af húsum og bæjum í Reykjavík er yfirleitt 1 kr.
60 a. um árið af hverjum 1000 kr. í virðingarverði þeirra, greitt í tvennu
lagi, 80 au. hvort skifti. Vátrygging húsa er lögboðin, en að eins kostur á
henni fyrir bæi. Reykjavík er vátrygð í hiuum »almenna brunabótasjóði
danskra kaupstaða«, fyrir alls um 5,646,000 kr. nú. Gjaldið til þeirra hóðan
nemur nú um 9000 kr. Tala vátrygðra húseigna í kaupstaðnum, þar með
bæja, er nú um 850.
BRUNABÓTASJÓÐ á Reykjavík nokkurn, frá þeim tíma, er bærinn
vátrygði sig sjálfur að nokkru leyti, til 1895. Hann nemur nú um
8,800 kr.
BRUN ABÓTAVIRÐINGAMEN N fyrir bæinn eru þeir trósmiðirnir