Bæjarskrá Reykjavíkur - 01.01.1905, Blaðsíða 80
134
Félaga skrá og stofnana
daga tvisvar á dag, kl. 8l/2 árdegis og ki. 5 sfðdegis, og 1 sinni á sunnu-
dögum, árdegis; póstkassar út um bæinn tæmdir kl. Y'/2 árd. og kl. 4 síðd.
Til Danmerkur kosta algeng sendibréf ekki þyngri en 3 kvint 16 a..
en 30 a., ef vega milli 3 og 25 kvinta, og 50 a., séu þau milli 25 og 50 kvinta.
Fyrir peninga í bréfum og böglum er þangað ábyrgðargjald 25 a. á hverjar
200 kr. eða minna. Meðmœlingargjald 15 a. Peningar þangað eru oftast
sendir í póstávísunum (sjá Póstáv ísani r).
Brófspjöld til Danmerkur kosta 8 a., krossbandssendingar 5 a. hver 10
kvint (alt að 4 pd.) og lokaðir böglar ekki þyngri en 1 pd. 35 a., en 10 a.
meira á hvert pd. úr því (alt að 10 pd.).
Til utanríkislanda er gjald undir algeng sendibréf 20 a. á hver
3 kvint, en 5 a. á hver 10 kv. í krossbandssendingum. Meðmælingargjald
15 a. Brófspjöld 10 a.
BÚNAÐARFÉLAG ÍSLANDS, stofnað 5. júlí 1899 til þess »að efla
landbúnað og aðra atvinnuvegi landsmanna, er standa f nánu sambandi við
hann«. Félagatal um 580, er greiða 10 kr. æfilangt, eða, séu það félög,
þá til 10 ára. Fastasjóður um 30,000 kr. Stjórn: bórhallur lektor Bjarnar-
son forseti, Eiríkur prestaskólakennari Briem skrifari, Þorleifur Jónsson póst-
afgreiðshimaður (varamaður) fóhirðir. Skrifstofa Lækjargötu 6, opin hvern
rúmhelgan dag kl. 12—2. Stjóruarfundir á mánudögum kl. 2—3.
BYGGINGARFULLTRÚI, skipaður af bæjarstjórn og launaður úr bæjar-
sjóði, hefir á hendi framkvæmd byggingarniála samkvæmt ákvæðum bygg-
ingarnefndar. Það er nú Knud Zimsen, heima kl. 3—4 (Styrimannastíg 15),
nema á laugardögum.
BYGGINGAltNEFND lteykjavíkur á að »ávfsa hið nauðsynlega pláss til
sérhverrar nýrrar byggingar og líka til nauðsynlegra garðrúms- og jurta-
garða, samt eiga þau þannig útmældu pláss að afgirðast og nýtast innan
tveggja ára útgöngu, þar þau, ef út af því bregður, aftur tilfalla kaup-
staðnum«. Brojarfógeti er formaður nefndarinnar; aðrir nefndarmenn eru:
Guðm. Jakobssoti trésm., Kristján Þorgrímsson kaupm., Knud Zimsen verk-
fræðingur og Tr. Gunnarsson bankastjóri. Fundi heldur nefndin á laugar-
dögum að jafnaði (sjá byggingarsamþykt 7. sept. 1903).
BÆJARFÓGETI f Reykjavík er Halldór Daníelsson, Aðalstr. 11. Skrif-