Bæjarskrá Reykjavíkur - 01.01.1905, Page 94
148
t
Félaga skrá og stofnatia
SÁTTANEFND Rvíkur heldur fundi á þriðjudögum kl. 9 árdegis í
lestrarsal Landsbókasafnsins (Alþingish.). Sáttamenn Jón Magnússon skrif-
stofustjóri og Jóhann Þorkelsson dómkirkjuprestur.
SJÚKRASAMLAG PTENTARAFÉLAGSINS í Reykjavík, stofnað í
ágústm. 1897, til »að styrkja fólagsmenn í veikindum«. Fólagatal 11, árs-
tillag 15 kr. 60 a, eða 30 a. á viku — þar af greiðir vinnuveitandi 1L —,
sjóður rúmar 1400 kr. Formaður Þórður Sigurðsson.
SKATTANEFND, bæjarfógcti (form.) og bæjarfulltrúarnir Halldór Jóns- 'á
son og Kristjáu Jónsson, semur í októbermánuði ár hvert skrá urn tekjur
þeirra bæjarbúa, sem skatt eiga að greiða í landssjóð samkvæmt tekjuskatts-
lógum 14. des. 1877.
SKAUTAFÉLAG Rvíktir, stofnað 11. nóv. 1892, með þeim tilgangi,
»að vekja og styðja áhuga bæjarmanna á skautfimi«. Fólagatal 130; árs-
tillag 1 kr. 50 a. (fyrir fullorðna); sjóður um 100 kr. Formaður Sigurður
Thoroddsen.
SKÓGRÆKTARFÉLAG, stofnað 25. ágúst 1901, fyrir forgöngu C. C.
Flensborgs skógfræðings, til skóggræðslu nærri höfuðstaðnum (við Rauðavatn).
Hlutafólag (25 kr. hl.). Formaður Steingr. Thorsteinsson rektor.
SKÓLANEFND, dómkirkjupresturinn (formaður) og bæjarfulltrúarnir
Guðm. Björr.sson og Þórhallur Bjarnarson, hefir ))umsjón með kenslunni í
barnaskólanum og öllu því, sem barnaskólann varðar«.
SLÖKKVILIÐIÐ í Rvík. »Þegar eldsvoði kemur upp, skulu allir verk-
færir karlmenn í bænurn vera skyldir til að koma til brunans og gjóra alt
það, sem verður skipað af þeim, er ræður fyrir því, er gjöra skuli til að
slökkva eldinn«. »Allir bæjarbúar, sem til þess verða álitnir hæfir, skulu
vera skyldir til að mæta tvisvar á ári eftir boði bæjarfógetans, til þess að
æfa sig í að fara með sprauturnar og önnur slökkvitól«. Slökkviliðsstjóri
er Hannes Hafliðason skipstjóri.
STEINAR, hlutafélag, stofnað 28. jan. 1905 með 8000 kr. höfuðstól
(sem auka má upp í 12000) í 200 kr. hlutum, og þvf hlutverki, að steypa
steina úr sementi og sar.di, sem notaðir verði bæði til húsagerðar og í reyk-
háfa. Stjórn Jón Þorláksson verkfræðingur (form.), Éggert Briem skrifstofu-
stjóri (gjaldk.) og Magnús Blöndahl.
STJÓRN ARRÁÐ, sjá landsstjórn íslands.