Bæjarskrá Reykjavíkur - 01.01.1905, Side 97
Félaga skrá og stofnana
151
styðja að ytra og innra trúboði. Það er grein af félagi á Norðurlöndum,
er nefnist Kvindelige Missionsarbejdere og hófst fyrir 5 árum. Það heldur
2 fundi á mánuði, með fyrirlestrum um kristniboð og kristilega starfsemi.
Félagstillag minst 50 a. á ári, en flestir gefa meira, 5—10 kr. Félagatal 40.
Stjórn: frú Kirstín Pétursdóttir form., frú Guðrún Lárnsdóttir ritari, húsfrú
Ingveldur Guðmundsdóttir gjaldkeri.
YEGANEFND »hefir umsjón með vegum og strætum bæjarins og fram-
kvæmir allar ráðstafanir, sem bæjarstjórnin gerir um vegagjörðir og endur-
bætur á vegum; hefir umsjón og framkvæmdir á snjómokstri, klakahöggi,
hreinsun á rennum og vatnsbóhim, alt eftir ákvæðum bæjarstjórnarinnar;
hefir loks umsjón með allri fasteign bæjarins, hvort heldur eru tún, slægjur,
mótak eða hús og áhöld«. Nefndarmenn eru 5 að töln, er bæjarstjórn ky's
úr sínum flokki: Sigurður Thoroddsen (form.), Guðmundur Björnsson, Jón
Magnússon, Kristján Þorgrímsson og Magnús Einarsson.
VERZLUNARMANNAFÉLAG REYKJAVÍKUR, stofnað 27. jan. 1891,
með þeim tilgangi, að »efla sumheldtii og nánari viðkynningu verzlunarmanna
innbyrðis og gæta hagsmuna þeirra«; fundir einu sinni í viku á vetrum
(lestrarstofa, bókasafn, skemtisamkomur, fyrirlestrar, stuðningur til að fá
góða stöðu). Félagatal 110, árstillag 6 kr., sjóður 4—500 kr. Form. B. II.
Bjarnason.
VÖLUNDUR, trésmíðafólag, stofnað 25. febr. 1904, til að koma á stofn
og reka trésmíðaverksmiðju og viðarverzlun, með 30 þús. kr. höfuðstól.
Félagatal (1. febr. þ. á.) 49. Stjórn: Magnús Blöndahl form., Iljörtur Hjartar-
son gjaldkeri, Sigvaldi Bjarnason ritari.
VÖRUMERKJASKRÁRRITARI, samkv. lögum 13. nóv. 1903, er Pétur
Hjaltested, cand. phil., Suðurg. 7
ÞILSKIPAABYRGÐARFÉLAGIÐ við Faxaflóa, stofuað 8. des. 1891,
til að koma á »sameiginlegri ábyrgð fólagsmanna á skipum þeim, sem í fé-
laginu eru, eftir róttri tiltölu við það, sem þeir hafa keypt ábyrgð á«.
Fólagatal 87, sem gjalda 2 til 6°/0 af ábyrgðarfiárhæðinni, eftir því, hve
skipið er lengi í ábyrgð yfir árið. Sjóður um 57,000 kr., þar af fastasjóður
um 25 þús. og sóreiguarsjóður rúm 32 þús. Tala vátrygðra skipa 60, vá-
trygð samtals fyrir 539,000 kr. Formaður Tryggvi Gunnarsson, féhirðir
C. Zimsen konsúll.