Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.01.1912, Qupperneq 6

Ægir - 01.01.1912, Qupperneq 6
2 ÆGIR. við allar fjárveitingar úr landssjóði, og' leiddi það til stofnunar Fiskiveiðasjóðs íslands, sbr. 1. 10. nóv. 1905, og þeir, er sömdu lögin um íiskiveiðasjóðinn, hafa sjeð það í hendi sjer, að alment fjelag til eflingar fiskiveiðum og siglingum myndi stofnað, því að i 4. gr. laga fiskiveiða- sjóðsins segir svo: »Verði stoínað al- inent fiskiveiða- eða útgerðarfjelag fyrir land alt, í nokkurri líking við Búnaðar- fjelag íslands, skal leita álits slíks fjelags um lánveitingar, styrkveitingar og verð- launaveitingar úrsjóðnum«. Fjelagsstofn- un var þannig vakandi i hugum manna, og ýmsir merkir menn, þar á meðal Tryggvi bankastjóri Gunnarsson, höfðu sterkan áhuga á málinu, og að því kom veturinn 1908, að nokkrir skipstjórar og út- vegsmenn og aðrir, sem vildu, að fram- kvæmdir yrðu i þessum efnum, hjer i bæn- um, hjeldu fund rneð sjer um málið. Fund- urinn kaus nefnd til að undirbúa lög. Bjarni adjunkt Sæmundsson samdi frumvarp til laga.að mestu sniðið eftir lögum »Selskabet for de norske Fiskeriers Fremme«, en lengra komst málið ekki áleiðis þá. Loks gerðist sá atburður haustið 1910, að annar liinna pólitisku ílokka sneri sjer að málinu. Stjórn skrifstofu sjált- stæðismanna, þeii- dr. Jón Þorlcelsson, Brynjóllur tannlæknir Björnsson og Ól- afur prestur ólafsson, tóku málið í sínar hendur og kvöddu til ráða með sjer ýmsa hina bestu menn, er kunnugir voru sjáv- arútveginum, hverjum pólitiskum flokki sem þeir fylgdu, og var það mjög vitur- lega ráðið. Málið fjekk sem vita mátti liinar bestu undirtektir, þvi að öllum var þegar ljós nauðsyn þessa fjelags, enda tókst að hrinda málinu svo fljótt áfram, að fjelagið var stofnað í þingbjTjun 1911 og stjórn valin. Formaður Hannes skipstj. Hafliðason og í stjórn með honum Magn- ús skólakennari Magnússon, skipstjórarnir Geir Sigurðsson og Matthías Þórðarson, og útvegsmaður Jón Magnússon í Skuld. Varaforseti Tryggvi Gunnarsson og með honum í varastjórn skipstjórarnir Sigurð- ur Jónsson í Görðunum og Jón Ólafsson. Endurskoðunarmenn reikninga fjelagsins Magnús lögfr. Sigurðsson og Brynjólfur tannlæknir Björnsson, en úrskurðarmenn: Þórhallur biskup Bjarnarson, Jens próf. Pálsson og Ólafur prestur Ólafsson. Lög fjelagsins, sem birt eru í heild sinni á öðrum stað i blaðinu, eru sniðin í mörgum greinum eftir lögum Búnaðar- fjelags íslands og frumvarps-uppkasti þvi, sem áður er nefnt. Siðasta Alþingi sýndi í verkinu, að það viðurkendi nauðsyn og' nytsemi fyr- irtækisins með því að veita fjelaginu nú þegar 2500 kr. styrk á ári, til þess að það gæti sem fyrst eflst og útbreiðst um landið alt. Sjerstaklega eiga þáverandi þingm. Reykvíkinga, þeir dr. Jón Þor- kelssonog Magnús Blöndalil, miklar þakkir skyldar fyrir ötula framgöngu á þinginu fyrir málinu, því að það mun mega segja með sannindum, að miklar líkur eru fyrir því, að fjelagið hefði ekki nú getað tekið til starfa, sökum fjárskorts, ef þeir hefðu ekki lagst eins þungt á sveifina og raun varð á. Þess er eklci þörf að fara mörgum orðum um, hve þarft og mildlvægt starf Fiskifjelagið á fyrir höndum að vinna, því að hver einasti íslendingur, sem kom- inn er til vits og ára veit, hversu sjávar- útvegurinn er mikil meginstoð undir far- sæld ogframförum þjóðarinnar, enfjelag- ið er til þess stofnað, að efla og lyfta með ráði og dáð þessum stórgerðasta og uppgripamesta atvinnuvegi landsins. Það er komið undir sjómannastjett vorri og íorsjálni og dugnaði(.-stjórnar fjelags þessa, hvort Fiskifjelag íslands get- ur náð því, er fram líða stundir, að verða

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.