Ægir - 01.01.1912, Síða 14
10
Æ G I R.
því, að styrkja sjávarútveginn og má
þakka það að verðleikum.
Þess utan veitti það styrk nokkrum
lireppsfjelögum til bryggjugerðar:
Vestmannaeyjum...............kr. 5,000
Hafnarfirði alt að.............— 25,000
Sauðárkróki....................— 3,000
Húsavík........................— 3,000
Akranesi.......................— 1,000
Lendingarsjóði Bolvikinga . . — 1,000
Samt. kr. 38,000
Erlendis.
Hvalveiðar Norðmanna.
Nú eru Norðmenn af kappi miklu
íarnir að stunda hvalveiðar í Suðurhöf-
um, og hafa reist þar margar stöðvar.
Ellefsen fór með helminginn af sínum
útvegi til Afriku í fyrra, og flytur sig að
likindum alfarinn hjeðan í ár, og hval-
veiðamennirnir Dahl og Bull líka. Að
Vsu gekk veiðin hjer við land betur árið
sem leið, en árið 1910, en gefur engan
ágóða í samanburði við þann, er fæst af
hvalveiðum við Afríkusli-endur. Norð-
menn ætla, að þeir hafi fengið 22 milj.
króna i hreinan ágóða inn i landið af
hvalveiðum árið sem leið, og þau mest
eftirsóttu hlutabrjef i Noregi eru nú
hlutabrjef i hvalveiðafjelögum, og gengið
er nú 250 á sumum brjefunum, og árs-
arðurinn hefur verið 100—150%. Um
35 norsk hlutafjelög reka nú hvalveiðar
við Airiku og Ástraliu. Þess utan eru um
20 ijelög, sem hingað til hafa stundað
veiðar i Norðurhöfum, og 2 stórtjelög
stunda hvalveiðar við Alaska undir ame-
risku flaggi, og nú er verið að mynda 4
eða 5 ný fjelög. Enginn atvinnurekstnr
hefur verið rekinn með öðru eins geysi-
kappi í Noregi eins og hvalveiðarnar nú,
og öll höf jarðarinnar hafa þeir lagt undir
sig. En hvenær þessu linnir og hvar
þetta lendir, er ekki gott að segja, en
eitt er þó víst, að hversu mikil mergð af
hvölum, sem er i öllum höfum jarðarinnar,
þá hlítur þeim að fækka, þar sem slikur
her steðjar alstaðar að og strádrepur það
sem fyrir verður. En Englendingar haf'a
haft við orð, að reyna að koma á al-
þjóðasamtökum til þess, að hefta dráp
hvalanna áður en þeir verða upprættir.
Fiskiafli Norðmanna
árið 1911 var yfirleitt betri en nokkru
sinni áður. Við Finnmörk veiddust 64,4
milj. af þorski; slikur afli hefur ekki
fengist þar síðan árið 1897. En meðal-
afli við Finnmörk hefur verið rúm 40
árin síðustu 50,8 milj. Lófót-fiskið var i
lakasta lagi, 10,5 milj. yfir árið; í öðrum
fiskiverum aflaðist og í lakara meðallagi,
en fiskverðið var svo hátt, að ágóðinn
varð samt mikill. Síldaraflinn var og að
öllu samanlögðu mikið góður.
Nýfundnalands-flskið
hefur árið sem leið verið i lang-lakasta
lagi, og það hefur orðið til þess, að vjer
höfum haft sæmilegt verð á fiski í ár.
Botnyörpuveiðar við Japan.
Japanar hafa um langan tima haft
dvöl í Grimsby til þess að kynna sjer
botnvörpuveiðar og annað viðvíkjandi
verkun og meðhöndlun á saltfiski og ís-
vörðum fiski og umbúnaði um hann á
markaðinn.
Fjelag meðal auðmanna i Tokio og
Osaka hefur keypt 5 botnvörpuskip í
Grimsby, og fór hið síðasta til Japan þ.
24. nóv., og er það ætlun þeirra, að
kaupa nokkur fleiri skip þaðan innan
skamms. Á hverju skipi er enskur boln-
vörpuskipstjóri, sem á að kenna aðferð-
ina við veiðiskapinn.