Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.1916, Blaðsíða 11

Ægir - 01.03.1916, Blaðsíða 11
Æ G I R 39 eyrin eyðist mjög litið af sjógangi og mun því allgóð undirstaða undir varnargarð. Að visu má gera ráð fyrir að nokkuð löð- ur gangi innyfir garðinn í aftaka brimum, en þó hygg jeg að garður gæti staðið þar, ef traust væri bygður. Líklegt er og að nokkuð mætti dýpka höfnina og mundi það gefa meira rúm á höfninni. En hvort sem fært yrði að byggja garð eða ekki, mætti án efa gera höfnina örugg- ari með því að leggja niður i hana öflug akkeri, sem skipin gætu lagst við. En þótt alt þetta væri gert, þá er það eitt víst, að Sandgerðishöfn er mikilstil of lílil fyrir allan þann skipasæg, er sækir hingað að Faxaflóa á hverri vetrarvertíð og sem eykst nú hröðum fetum með ári hverju. Eigi eru vitarnir í Sandgerði komnir upp enn. Húsin um þá eru fullsmiðuð hjer inni í Reykjavík, en ljóskerin voru enn ókomin, er jeg var staddur þar. Er slíkt mjög hagalegt, því leiðarljós þau, er nú eru þar, eru mikilstil of litil og lág. Mjög gremjulegt var að sjá, hve geysi- inikið peningavirði fór til ónýtis i Sand- gerði vegna mannfæðar. Stórir þorskhaus- ar lágu i þúsundatali meðfram allri höfn- inni og sagt var mjer, að litið eða ekkert væri hirt af gotunni. Það mundi reynast allgóð atvinna fyrir nokkra menn að vera i Sandgerði á vetrarvertiðinni og hirða það sem fiskimenn komasl ekki yfir að hirða, svo sem þorskhausa, gotu og smálýsu, enda nóg atvinna þar við aðgerð á fiski og kaupgjald hátl. I Garði skoðaði jeg, eftir tilmælum Þor- steins Gíslasonar á Meiðastöðum svokall- aðan Varaós. I3ar sem mikil líkindi eru til, að róðr- arbátaútvegur haldist enn uin langt skeið i Garði, virðist ástæða til, að Garðbúar fengju styrk til lendingarbótar þeirrar, er þeir hafa hugsað sjer og sem mjer virtist að mundi verða til mikilla bóta. Jeg býst við, að ef þeir gætu búist við að fá alt að 500 kr. styrk til þessa, þá mundu þeir gela lagt út í það á komandi sumri. Þar sem jafn ilt er um hafnir og hjer við sunnanverðan Faxaflóa verður að lelja Vogavík góða höfn, og mun betri en Njarð- víkur, þótt þar sje einnig gott skýli i ýms- um áttum. Á Vogavik mun skipum, með sæmilega góðum grunnfærum, lægt í hvaða veðri sem er og af hvaða átt sem er. Vegalengdin frá Vogum út á fiskimiðin er engin frágangssök. Verði sú raua á, að eigi álítist fært að gera höfn í Ósabotn- unum, þá mun það sannast, að aðalat- hvarfið hjer við sunnanverðann flóann verður Vogavíkin. Pramfarir hafnarperða í Noregi 25 síðastliðin ár. Á síðasta þriðjungi 19. aldarinnar, varð eins og mörgum mun kunnugt, mikil breyt- ing á verslun og samgöngum allrar Norð- urálfunnar. Aðalorsök þessarar breylingar, voru fast- ar og ákveðnar skipaferðir landa og hafna á miili, og að ferðir hyrjuðu um Suez- skurðinu, en það hafði i för með sjer, að hafnargerðir byrjuðu í sjóborgum Norður- álfunnar. Fyrst i stað hafði þetta engin áhrif á framkvæmdir í Noregi, en ekki Jeið þó á löngu áður en auknar skipa- ferðir knúðu menn til þeirra. Það varð öllum Ijós't, að hjer varð einnig að fylgj- ast með tímanum, og má telja svó, að allar hafnargerðir falli innan síðastliðinna 25 ára.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.