Ægir

Volume

Ægir - 01.07.1916, Page 8

Ægir - 01.07.1916, Page 8
84 ÆGIR 3. gr. Ákvæði I. og 2. gr. gilda að eins, ef vörur þær, er í 1. gr. getur, eiga að fara til annara landa en Stóra-Bretlands, bandamanna þess, Spánar, Ameriku eða til Danmerkur til heimaneyzlu að því leyti, sem útflutningur hjeðan í því skyni kann að geta átt sjer stað, og eftir reglum, sem þar um verða settar. 4. gr. Skip, sem nú liggur á islenskri höfn og bíður hleðslu eða er byrjað að hlaða nefndum vörum og eigi eiga að fara til Stóra-Bretlands, bandamanna þess, Spánar, Ameríku eða Danmerkur undir skilorði þvi, er í 3. gr. getur, má eigi heldur afgreiða án fullnægju áðurnefnds skilyrðis um framboð til umboðsmanns Breta, en í þessu tilfelli verður svar veitt innan 24 klst. frá móttöku framboðs. 5. gr. Með mál út af brotum gegn reglugiörð þessari skal fara sem almenn lög- reglumál. 6. gr. Beglugjörð þessi öðlast þegar gildi. 1 stjórnarráði íslands, 28. júlí 1916. Einar /Vrnórsson. (Lögbiriingablaðið.) Jón Hermannsson. Horfur. Frá síldveiðaslöðvum Norðurlands eru frjettir iskyggilegar. Mikill síldaraíli hef- ur þegar borist á land, en nú heyrist að tunnuleysi og sallleysi ætli að hefta á- framhald veiðinnar. Sum útgerðarfjelögin hafa orðið fyrir því óhappi, að tunnur þær er hingað áttu að koma hafa verið teknar, flutn- ingur á þeim eigi leyfður, og er það auð- skilið, hvilíkur bagi slíkt er, einkum nú þegar útgerðin er það dýr að engu má muna og verð sildarinnar skamtað. Fjöldi mótorbáta hefur verið keyptur frá úllöndum fyrir ærið fje og þeir, sem í það fyrirtæki ráðast, hafa þá von, að það verði til gróða en ekki fjármissis. Sje nú ástæðan sú í þetta sinni, að tunnuleysið verði til þess að alt mis- heppnist fyrir vinnuveitendum og vinnu- þyggjendum og að af því leiði stórljón fyrir útgerð landsins, þó liggur næst fyrir að hugsa um, hvort ekki verði úr sl ku bætt í framtiðinni. Þurfa íslendingar að vera upp á aðra kornnir með tunnur; gela þeir ekki smíðað tunnur sínar sjálfir? Kæmist tunnuverksmiðja á hjer á landi, mundi það veita íjölda manna at- vinnu. Útgerðarmenn væru vissir um að þurfa ekki að hætta veiðum vegna tunnuleysis og þó þær í byrjun yrðu dýrari en útlendar tunnur, þá er vissan

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.