Ægir

Volume

Ægir - 01.07.1916, Page 10

Ægir - 01.07.1916, Page 10
86 ÆGIR þ. m. sent skriístofu fiskveiðamálanna svo hljóðandi brjef: »Mjer hefur verið falið að lilkynna fiskimönnum, útgerðarmönnum og þeim öðrum er versla með fisk, að stjórnin ætlar sjcr ekki að selja skorður við því að norskir fiskimenn geti fengið nauð- synjar sinar fyrir utan strendur íslands til 31. júlí næstkomandi, svo framarlega sem þeim er mögulegt að afla sjer þess- ar nauðsynja. Ró er þetta þeim skilyrð- um hundið að fiskimenn, útgerðarmenn og fiskkaupmenn gefi skriflega vigurkenn- ingu fyrir því, að þeir láti þá kaupend- endur setja fyrir kaupum á fiskinum, sem stjórnin samþykkir og sje verðið miðað við 45 kr. hverja tunnu síldar venjulega fylta, flutta til hverrar hafnar sem er í Norvegi, ennfremur 105 kr. fyrir hverja tunnu af bestu tegund síld- arlýsis — á 100 kil. — einnig fluttar á höfn i Noregi í tunnum, og aðrar teg- undir af sildar lýsi lilutfallslega. Framanrituð yfirlýsing mun einnig innihalda skuldbindingu um, að fiski- menn, útgerðarmenn og kaupmenn selji sild, lýsi eða aðrar slíkar afurðir einung- is til þeirra manna er stjórnin samþykk- ir — ef forkaupsrjettinum verður ekki framfylgt — og sem að skuldbinda sig til að uppfylla eftirfarandi skilyrði: Að allar afurðirnar fari til Noregs, Sviþjóðar eða annara verslunarstaða ut- an Norðurlanda, sem vjer samþykkjum, og seljendur á sama hátt krefjist slíkra skuldbindinga af væntanlegum lcaupend- um, sem fullnægir stjórninni með að fiskurinn ekki verði fluttur út aftur; og og hvað snertir lýsi eða fiskmjöl, að þær vörur verði ekki fluttar aftur út frá Nor- egi, ef stjórnin ekki geíur til þess sjer- stakt leyfi eða framfylgir forkaupsrjetti sínum«. (Athugasemd: í brjefi þessu er með orðinu stjórnin átt við ensku stjórnina.) Sendinefnd frá Norvegi er á ráðstefnu í London, til að semja um aðgengilegri skilmála bæði viðvikjandi þessu, sem öðrum verslunarsökum en árangurinn er ekki opinber enn þá. í enskum og' dönskum blöðum hafa staðið sagnir um að Englendingar haíi keypt af Norðmönnum allan næsta árs afla. En norsk blöð bera þetta til baka og segja að þetta sje misskilningur, hjer sje þvi blandað saman að Engl. hafi keypt megnið af vetraraílanum, bæði fisk, síld og lýsi; einnig alt hvallýsi frá Suðurhöfum. Stafanger Aftenblad telur áreiðanlegt að allar þessar vörur samtals hafi numið 9 millj. £ Sem dæmi um hvað Norðmenn eiga auðvelt með að koma afurðum sínum i peninga, skal þess getið að á Finnmörk- inni er nú selkjöt borgað með Í,k0 kr. kil. og eitir því sem »Norsk Handels og Söfartstidende« segja þá kappbjóða Engl. og Þjóðverjar hverir móti öðrum — Þjóðverjar af þörf fyrir matvæli og Engl. af kvöt til að sporna á móti aðfluttningi á matvælum til Þýskalands. Þar sem selveidi er stunduð á íslandi ættu menn að verka kjötið sem best og salta það í tunnur, því ekki er ólíklegt að það sje mikils virði ef það kæmist á markaðinn. Jeg skýrði frá því i siðustu skýrsku að Norðmenn í síðaslliðin 10 ár hefðu sam- lals fengið 1,035,550 föt af hvallýsi af veiðum sínum í Suðurhöfnm, eða rúm- lega 100,000 föt á ári. En nú má búast við mikilli breytingu á þessu, þar sem mörg af hvalveiðafjelögunum hafa hætt veiðum og sett skip sín í fluttninga. Ár- ið 1914 höfðu Norðmenn 53 hvalveiða-

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.