Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.1917, Blaðsíða 6

Ægir - 01.08.1917, Blaðsíða 6
110 ÆGIR vísindamönnum Norðurálfu síðustu 20 árin, eða lengur. Fyrstu áhöld Marconi’s voru auðvitað mjög einföld og ófullkomin, sem við er að búast. En Marconi varð þó fyrst- ur til að sameina þetta og hlaut því með réttu nafnið »höfundur hinnar þráðlausu firðritunar«. Með þessi áhöld lagði Marconi af stað til Englands árið 1896 og hóf þar frekari tilraunir. Miðaði lionum vel áfram og tókst árið 1897 að senda merki yfir Bristol fló- ann (15 km.). En erfiðleikar þeir, er hann átti við að búa voru miklir og margvís- legir. Mest liamlaði það þó öllum fram- kvæmdum hjá honum, hversu vantrúaðir rnenn voru á uppfundningu hans og gekk honum þar af leiðandi illa að fá fé til til- raunanna. Lánið virtist þó vera með hon- um, þvi að árið 1899 — á hundrað ára afmæli raf-tækninnar — var haldinn fund- ur í brezka visindamannafélaginu, i Dover á Englandi og samtímis annar í franska systurfélaginu, i Boulogne sur Mer. Mar- coni hafði sett upp tæki beggja megin Ermarsunds og gat sent merki milli þeirra. Á fundunum voru saman komnir margir merkir vísindamenn, sem fengu nú tæki- færi til þess að athuga uppfundninguna og sannfærast um ágæti hennar, þá hvarf líka vantrú hinna »ólærðu« á henni um leið. Petta mun vera einhver mesti sigur Mar- coni’s. Eg skal nú fara fljótt yfir sögu. Tækin voru óðum endurbætt eftir þetta og félög slofnuð til þess að hagnýta uppfundning- una; jafnframt komu til sögunnar mörg ný kerfi, sem öll voru bygð á þessum sama grundvelli. Árið 1899 kom í fyrsta sinn út frétta- blað um borð i skipi. Skipið hét St. Paul og var Marconi sjálfur þar um borð; var blaðið nefnt »The Transatlantic Times«. Nú koma slik hlöð út á llestum slærri skipum, er sigla landa milli; jafnvel á íslenzku skipi hefir verið gefið út dagblað. Þegar »Goðafoss« fór til Vesturheims síð- astliðið ár, var gefið út um borð í því fréttablað og nefnt »Eldingar«; mun það vera fyrsta islenzka fréttablaðið sem gefið hefir verið út á rúrnsjó. Árið 1901 var stöðin við Poldhu á Corn- wall-skaganum í Englandi reist og rétt á eftir gat Marconi tekið merki frá henni hinum megin Atlanzhafsins. Þá var þráð- lausa firðritunin komin svo langt, að hægl var að senda merki með henni yfir Atlanz- hafið. Nú eru svo ég viti þrenn slík sam- bönd: milli Nauen (skamt frá Berlín) og Sayville á Long Island; milli Clifden á írlandi og Cape Cod i Massachusetts og milll Eilvese við Hanover og Tuckerton, skamt fyrir sunnan New York. Hefir þráð- lausu firðrituninni fleygt fram síðustu árin og má búast við, ef svona heldur áfram, að innan 10 ára verði hægt að nota hana til fastra viðskifta landa milli. . Tæki þau, sem nú eru notuð, eru ger- ólík þeim, sem áður er talað um. í stað platanna eru nú noluð »net« úr málm- þráðum og sjálf eru áhöldin alt öðruvísi en þau gömlu. Kerfunum hefir fjölgað og eru þessi hin helztu: Marconi’s (enskt), Telefunken (þýzkt), Poulsen’s (danskt), DeForest (ameriskt), Goldschmidt, Lepel (franskt), Kilbourne & Ivlark (amerískt), Tyk (jap- anskt) o. fl., o. fl., óendanlega mörg. Ég skal ekki leggja neinn dóm á það, livert þessara kerfa er bezt; þau hafa fiest eitt- hvað til síns ágætis. Útbreyddust eru Mar- coni’s og Telefunken, Kilbourne & Clark og Lepel. Tyk kerfið er eingöngu notað i Japan og á japönskum skipum. Poulsens hefir náð lítilli útbreiðslu. Tvö af framan- töldum kerfum eru mjög að ryðja sér til rúms núna, sem sé Goldschmidt’s og De- Forest’s. Goldschmidt’s er eiginlega ekki sjálfstætt kerfi, en aðalliðurinn í því, raf-

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.